Innlent

Dómarinn: Eini tilgangurinn var að fylgjast með ferðum Sivjar

Siv Friðleifsdóttir alþingismaður
Siv Friðleifsdóttir alþingismaður
Eini tilgangur Þorsteins Húnbogasonar að koma staðsetningarbúnaði fyrir í bifreið sem fyrrum sambýliskona hans, Siv Friðleifsdóttir hafði til umráða, var að fylgjast með ferðum hennar. Þetta er niðurstaða dómara sem dæmdi Þorsteinn til greiðslu sektar upp á 270 þúsund krónur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Dómarinn hafnar þeim framburði Þorsteins, að hann hafi flutt staðsetningarbúnað úr bíl sínum í bíl sem sonur þeirra Sivjar og Siv höfðu til umráða til að fylgjast með akstri piltsins og gefa honum upplýsingar vegna aksturs hans sjálfs við veiðivörslu. „Það stenst ekki að búnaðurinn hafi átt að gefa upplýsingar vegna akstur drengsins, enda hafði móðir hans enga hugmynd um hann. Það hlaut þó að vera nauðsynlegt þar eð hún hafði umráð bifreiðarinnar og sonur væntanlega þurft að snúa sér til hennar til að fá hann lánaðan.“

Þorsteinn hefur ekki áður hlotið dóm og var því refsing hans, með hliðsjón var málavöxtum öllu, ákveðin 270 þúsund krónur í sekt en ef hún verði ekki greidd innan 4 vikna sæti hann fangelsi í 20 daga. Þá var hann dæmdur til að greiða verjanda sínum um 314 þúsund krónur í málsvarnarlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×