Hilmir Snær snýr aftur í Þjóðleikhúsið 1. maí 2011 11:10 Hilmir Snær.
Á næsta leikári gengur Hilmir Snær Guðnason, sem var hjá Borgarleikhúsinu, aftur til liðs við leikhóp Þjóðleikhússins eftir nokkurt hlé. Ásamt honum bætast nú í hóp fastráðinna leikara fimm afburða leikarar sem allir hafa sett sterkan svip á starf Þjóðleikhússins og íslenskt leikhúslíf á undanförnum árum, þau Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Sterkur og fjölhæfur hópur listamanna er styrkur hvers leikhúss og á næstunni verður einnig gengið frá tímabundnum samningum við leikara, árssamningum og verkefnaráðningum vegna tiltekinna sýninga á næsta leikári. Næsta haust munu þrír af eftirsóttustu leikhúslistamönnum okkar, þeir Hilmir Snær Guðnason, Ingvar E. Sigurðsson og Baltasar Kormákur, sameina krafta sína að nýju í Listaverkinu eftir Yasminu Reza í leikstjórn Guðjóns Pedersen. Í öðrum verkefnum haustsins munu tvær af okkar virtustu leikkonum af eldri kynslóðinni vera í burðarhlutverkum, þær Kristbjörg Kjeld og Margrét Helga Jóhannsdóttir. Kristbjörg hefur í gegnum árin verið einn af máttarstólpunum í leikarahópi Þjóðleikhússins en Margrét Helga ljær nú Þjóðleikhúsinu krafta sína eftir langan og farsælan feril hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Margrét Helga Jóhannsdóttir fer með aðalhlutverk í hinu magnaða verki Hreinsun eftir Sofi Oksanen í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Höfundurinn hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu byggða á leikritinu, og bókin var meðal söluhæstu bóka hér á landi á liðnu ári. Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk í leikritinu Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Auður sendir nú frá sér sitt fyrsta leikrit en skáldsögur hennar hafa vakið mikla eftirtekt á undanförnum árum og unnið til verðlauna jafnt á Íslandi sem í Frakklandi. Leikarahópur Þjóðleikhússins tekur alltaf einhverjum breytingum á hverju leikári, og nokkrir leikarar hverfa nú úr hópi fastráðinna leikara hússins, að minnsta kosti um sinn, í stað þeirra sem koma inn. Þess má geta að tveimur leikurum var sagt upp á dögunum. Þá voru tveir aðrir samningar við leikara ekki endurnýjaðir.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira