Gallastuttbuxur slá í gegn 1. maí 2011 12:15 Samkvæmt Sindra Snæ Jenssyni eiga smekkmenn að klæðast gallastuttbuxum í sumar vilji þeir tolla í tískunni. Gossip Girl-stjarnan Penn Badgley er augljóslega hrifinn af gallastuttbuxunum. Upphaf tískunnar má rekja til sálarsérfræðingsins Tobias Fünke úr Arrested Development.
Sálarsérfræðingurinn Tobias Fünke er ein af eftirminnilegri persónunum úr sjónvarpsþáttunum Arrested Development. Í þáttunum klæddist hann gjarnan gallastuttbuxum, eða „cutoffs". Þær verða það heitasta í strákatískunni í sumar. Gallastuttbuxur hafa verið vinsælar meðal karlpeningsins bæði í Svíþjóð og Danmörku undanfarin sumur. Nú hefur þessi tíska náð hingað til lands og að sögn Sindra Snæs Jenssonar, verslunarstjóra í Gallerí Sautján, hafa stuttbuxurnar rokið út. „Stuttbuxurnar hafa verið vinsælar í Skandinavíu undanfarin ár, en við virðumst hafa verið aðeins lengur að taka við okkur. Buxurnar hafa þó verið til hjá okkur í svolítinn tíma en þá alltaf í litlu magni því það voru fáir sem lögðu í þetta," útskýrir Sindri Snær. Hann segir starfsmenn verslunarinnar þó hafa kollfallið fyrir þessari tísku og sjálfur á hann þónokkrar útgáfur af stuttbuxunum og frá ólíkum tískumerkjum. Tíðin virðist eitthvað vera að breytast því undanfarið hafa buxurnar rokið út. „Menn eru að „fíla" þetta og taka betur við ráðleggingum okkar sem vinnum hér. Þónokkrir fótboltastrákar og aðrir töffarar hafa fest kaup á svona stuttbuxum. Við eigum því örugglega eftir að sjá marga smekkmenn klæðast þessu í sumar," segir hann. Inntur eftir því hverju menn eigi að klæðast við slíkar stuttbuxur segir Sindri Snær að lágir strigaskór og flottur bolur eða skyrta verði það heitasta í sumar. sara@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira