Kristni í lagi meðan fólk fer ekki í kirkju 21. september 2011 13:45 Frá Gay Pride. „
Staðreyndin er sú að málflutningur á borð við þann sem Friðrik stendur fyrir veldur því að samkynhneigð ungmenni jafnt á Íslandi sem um heim allan líða miklar kvalir og í versta falli fremja sjálfsmorð því einhver prestur segir þeim að tilfinningarnar sem þau eru að upplifa séu ekki Guði þóknanlegar. Það eru þung og erfið skilaboð fyrir óharðnaða unglinga," skrifar Guðmundur Helgason, formaður samtaka 78´, og svarar grein sem Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, ritað og birti í Fréttablaðinu og á Vísi í gær. Friðrik vildi þá meina að hann hefði verið hafður fyrir rangri sök í grein sem birtist í Fréttablaðinu fyrr í mánuðinum. Hann sagðist ekki líta á samkynhneigð sem synd, en væri á móti samlífi þeirra. Á móti skírir Guðmundur grein sína: „Kristni í lagi svo fremi að fólk fari ekki í kirkju!" Guðmundur bætir við að þetta sé þó ekki hans skoðun. „En fullyrðingin er álíka gáfuleg og sú að samkynhneigð sé í lagi á meðan fólk stundi ekki kynlíf með sama kyni," skrifar Guðmundur. Friðrik skrifaði enn fremur í grein sína að nú væri staðan sú að þeir sem væru á móti samkynhneigð sættu fordómum í samfélaginu. Guðmundur svara því til að það sé rangt. „Fólk er einfaldlega á móti hatursáróðri, jafnvel þegar hann er kynntur undir rósinni „elskið syndarann en fordæmið syndina." Ástæðan fyrir því að Friðrik skrifaði grein sína í blaðið í gær var helst vegna þess að Reykjavíkurborg hafnaði því að styrkja kirkjuna um byggingastyrk sem búið var að ánafna kirkjunni. Fór borgin þar að ráðleggingum mannréttindaráðs sem taldi viðhorf safnaðarins gagnvart samkynhneigðum ekki samræmast gildum ráðsins. Hægt er að lesa grein Guðmundar í heild sinni hér fyrir neðan. Grein Friðriks má svo lesa í viðhengi með fréttinni.Kristni í lagi svo fremi að fólk fari ekki í kirkju!Nei – þetta er ekki skoðun undirritaðs en fullyrðingin er álíka gáfuleg og sú að samkynhneigð sé í lagi á meðan fólk stundi ekki kynlíf með sama kyni. Er ég einn um að finnast þessi áhugi Friðriks Schram og fleiri presta á kynlífi samkynhneigðra eitthvað skrýtinn? Samkynhneigðir stunda kynlíf já, en við stundum líka nám, vinnu og skemmtistaði, pöntum pítsu, förum í bíó, horfum á sjónvarp, ræktum vini okkar og fjölskyldu – já, við lifum bara svipuðu lífi og flestir aðrir.Miklu púðri er eytt í að reyna að koma í veg fyrir að fólk stundi kynlíf með sama kyni en eitthvað ber minna á mótmælum gegn kynlífi gagnkynhneigðra utan hjónabands, barneignum utan hjónabands, skilnuðum... ég gæti haldið áfram. Allt eru þetta „syndir" samkvæmt hinni 2000 ára gömlu bók sem sífellt er vitnað í þegar berja skal á samkynhneigðum. Já, berja því það mætti halda að forsvarsmenn kirkjusafnaða eins og Kristskirkjunnar séu í heilögu stríði gegn samkynhneigð. Er kannski auðveldara að berja á hommunum heldur en hinum gagnkynhneigða meirihluta? Má ég minna á að ekki eru allir sömu trúar og margir sem ekki trúa á neinn Guð. Er í lagi að kúga það fólk í nafni sinnar eigin trúar?Á vefsíðu Kristskirkjunnar er greinasafn Friðriks Schram þar sem meðal annars má sjá greinartitilinn „Foreldrar gætið barnanna ykkar fyrir Samtökunum 78." Því miður vísar þessi tengill í aðra grein því ég er mjög forvitinn að heyra hvað það er nákvæmlega sem samtökin sem ég er í forsvari fyrir hafa gert börnum landsins. Ég held að það sé margt annað sem mætti vara foreldra við en Samtökin '78.Samtökin eru með öflugt ungliðastarf undir sínum verndarvæng og mér hefur verið tjáð af móður að ungliðahópurinn hafi bjargað barni hennar því engir voru vinirnir í skólanum. Er það þetta sem foreldrar eiga að passa börnin sín fyrir? Að þau eignist vini og JAFNINGJA? Kynnist öðrum hinsegin ungmennum sem eru að upplifa svipaðar tilfinningar? Þá bjóða Samtökin '78 einnig uppá fría félagsráðgjöf fyrir þá sem þess óska og er ekki vanþörf á meðan fólk mætir svona fordómum.Staðreyndin er sú að málflutningur á borð við þann sem Friðrik stendur fyrir veldur því að samkynhneigð ungmenni jafnt á Íslandi sem um heim allan líða miklar kvalir og í versta falli fremja sjálfsmorð því einhver prestur segir þeim að tilfinningarnar sem þau eru að upplifa séu ekki Guði þóknanlegar. Það eru þung og erfið skilaboð fyrir óharðnaða unglinga. Samtökin '78 hafa ekki stundað að berjast gegn hópum eða félagasamtökum með vopnum og ekki stendur til að byrja á því núna. Við svörum þegar á okkur hallar eða ráðist er á hinsegin fólk. Friðriki finnst fólk vera með fordóma gagnvart sér og sínum skoðunum en það er rangt. Fólk er einfaldlega á móti hatursáróðri, jafnvel þegar hann er kynntur undir rósinni „elskið syndarann en fordæmið syndina."Guðmundur Helgason, formaður Samtakanna '78
Tengdar fréttir Friðrik Schram: Þeir sem eru á móti samkynhneigð mæta fordómum Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, segist vera hafður fyrir rangri sök þegar honum voru gefnar upp þær skoðanir að honum þætti samkynhneigð synd og glæpsamleg. 20. september 2011 10:44 Sigmundur Ernir vill ekki styrkja Kristskirkju: „Heyr á endemi“ Þingmaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson, telur það vera rétta ákvörðun hjá Reykjavíkurborg að styrkja ekki Kristskirkjuna í Reykjavík, vegna viðhorfa söfnuðarins til samkynhneigðar. 20. september 2011 15:21 Samkynhneigðir bjóða Friðriki í heimsókn Prestur íslensku krists-kirkjunnar í Reykjavík segir kynlíf einstaklinga af sama kyni vera rangt. Formaður Samtakanna 78 segir prestinn breiða út fordóma og skorar á hann að kíkja í heimsókn og fræðast. 20. september 2011 20:54 Mest lesið Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Innlent Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara Innlent Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Vilja að ríkisstarfsmenn geti starfað til 73 ára aldurs Innlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Fleiri fréttir Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Skora á stjórnvöld að skoða áhrifin af hærra veiðigjaldi á Vestfirði Konan í gæsluvarðhaldi í mánuð til viðbótar Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara Bein útsending: Staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn geti starfað til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Sjá meira
Friðrik Schram: Þeir sem eru á móti samkynhneigð mæta fordómum Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, segist vera hafður fyrir rangri sök þegar honum voru gefnar upp þær skoðanir að honum þætti samkynhneigð synd og glæpsamleg. 20. september 2011 10:44
Sigmundur Ernir vill ekki styrkja Kristskirkju: „Heyr á endemi“ Þingmaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson, telur það vera rétta ákvörðun hjá Reykjavíkurborg að styrkja ekki Kristskirkjuna í Reykjavík, vegna viðhorfa söfnuðarins til samkynhneigðar. 20. september 2011 15:21
Samkynhneigðir bjóða Friðriki í heimsókn Prestur íslensku krists-kirkjunnar í Reykjavík segir kynlíf einstaklinga af sama kyni vera rangt. Formaður Samtakanna 78 segir prestinn breiða út fordóma og skorar á hann að kíkja í heimsókn og fræðast. 20. september 2011 20:54