Stefnir í magurt kvikmyndaár 3. nóvember 2011 13:00 Svartur á leik verður frumsýnd á næsta ári.
Næsta ár verður dapurt, þetta verða kannski tvær til þrjár frumsýningar," segir Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Eftir næstum ótrúlega fjörug ár að undanförnu þar sem þrjátíu íslenskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar stefnir í ansi mögur ár á næstunni í íslenskri kvikmyndagerð. Kvikmyndirnar Djúpið, Svartur á leik og Þetta reddast verða einu íslensku kvikmyndirnar sem frumsýndar verða árið 2012 ef að líkum lætur. Á þessu ári hafa átta íslenskar kvikmyndir verið frumsýndar en 2010 var algjört metár; níu íslenskar kvikmyndir í fullri lengd litu þá dagsins ljós. 2009 voru þær sex og árið þar áður voru myndirnar sjö. Til samanburðar má nefna að tímabilið 2004-2007 voru íslenskar frumsýningar „aðeins" sextán, eða næstum helmingi færri. Það hefur legið lengi í loftinu að það myndi harðna á dalnum hjá íslensku kvikmyndagerðarfólki en Laufey segir að það sé fyrst núna sem niðurskurðarhnífurinn bitni á íslenskri kvikmyndagerð; kvikmyndir séu einfaldlega svona lengi í vinnslu. Laufey óttast jafnframt að fagfólk hugsi sér til hreyfings enda sé ekki mikið fram undan; aðeins fjórar myndir hafa fengið svokallað vilyrði fyrir styrk frá Kvikmyndasjóði sem er veittur með þeim fyrirvara að það takist að fjármagna myndina eftir öðrum leiðum, það séu ansi mörg „ef" á þeim vegi. Myndirnar fjórar eru Grafarþögn eftir Baltasar Kormák, Málmhaus eftir Ragnar Bragason, Ófeigur gengur aftur eftir Ágúst Guðmundsson og Hross um oss eftir Benedikt Erlingsson. -fgg
Mest lesið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Lífið samstarf Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira