Innlent

Allt í hnút í kjaradeilu undirmanna hjá Hafrannsóknarstofnun

Stuttum fundi undirmanna á skipum Hafrannsóknastofnunar við viðsemjendur, lauk hjá ríkissáttasemjara án árangurs í gær.

Sáttasemjari sér ekki ástæðu til að boða til nýs fundar að svo stöddu, því deilan er alveg í hnút. 

Verkfall undirmannanna hefur nú staðið í rúman mánuð og hafa skipin verið bundin við bryggju, þannig að ekki hefur verið hægt að gera árlegar samanburðarrannsóknir á ýmsum fiskistofnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×