Fyrirsætan sem sló í gegn 23. júní 2011 11:00 Fyrirsætan fyrrverandi, Cameron Diaz, verður fertug á næsta ári og þrátt fyrir skort á leikaramenntun er hún meðal vinsælustu leikara í Hollywood í dag. Nordicphoto/getty
Með hártoppinn beinstífan upp í loftið heillaði hún áhorfendur er hún lék Mary í myndinni There"s Some-thing About Mary. Það er hin leggjalanga og ljóshærða Cameron Diaz sem leikur aðalhlutverkið í gamanmyndinni Bad Teacher en myndin var frumsýnd hér á landi í gær. Það var í byrjun tíunda áratugarins sem Cameron Diaz var send á vegum Elite-fyrirsætuskrifstofunnar í prufur fyrir myndina The Mask. Með enga leikreynslu að baki landaði Diaz aðalkvenhlutverki myndarinnar og skaust hratt upp á stjörnuhimininn í kjölfarið. Ferilskráin hefur lengst talsvert og inniheldur kvikmyndir á borð við My Best Friend"s Wedding, Being John Malkovich, Vanilla Sky og Gangs of New York ásamt einum af englunum þremur í Charlie"s Angels myndunum. Einnig ljáði Cameron Diaz prinsessunni Fionu, í teiknimyndunum um græna risann Shrek, rödd sína við miklar vinsældir. Leikkonan hefur toppað lista fjölmiðla yfir fegurstu konur heims og þykir bros hennar á hvíta tjaldinu hafa mikið aðdráttarafl á áhorfendur. Flestar myndir sem hún leikur í hafa rakað inn peningaseðlum en rómantískar gamanmyndir virðast vera hennar sérflokkur. Nýjasta mynd hennar, Bad Teacher, fellur einmitt undir þann flokk kvikmynda en þar bregður Diaz sér í hlutverk fátæks og drykkfellds kennara, Elisabeth Hasley. Henni leiðist starf sitt óskaplega og leggur sig því ekki mikið fram í vinnunni. Þess vegna einsetur hún sér að næla í forríka forfallakennarann, leikinn af Justin Timberlake, en til þess þarf hún að taka sig á í starfi. Jason Segel, sem er best þekktur úr gamanþáttaröðinni How I Met Your Mother, leikur íþróttakennara sem gerir hosur sínar grænar fyrir Elisabeth án teljandi lukku. Ekkert lát virðist vera á vinsældum Cameron Diaz sem fagnar fertugsafmæli sínu á næsta ári. Hún er þessa dagana að taka upp myndina Gambit, sem skartar breska leikaranum Colin Firth í aðalhlutverki, en hún verður frumsýnd árið 2012. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira