Lífið

Portúgalir trylltust yfir Bloodgroup

Bloodgroup er á tónleikaferðalagi um Evrópu.
Bloodgroup er á tónleikaferðalagi um Evrópu.
„Það var svo mikill hávaði að heyrnin í mér datt út á tímabili," segir Ragnar Láki, einn af hljómborðsleikurum hljómsveitarinnar Bloodgroup.

Bloodgroup er nú á heljarinnar tónleikaferðalagi um Evrópu sem stendur yfir í meira en mánuði. Hljómsveitin fór til Frakklands í síðustu viku og þaðan til Portó í Portúgal þar sem hún kom fram fyrir 2.000 tryllta námsmenn. „Það var allt vitlaust. Ég hef aldrei á ævinni heyrt meiri hávaða en í áhorfendum eftir tónleikana," segir Ragnar.

Bloodgrop hélt svo til Lissabon og svo áleiðis til Spánar. Ragnar segir tónleikaferðalagið hafa verið mjög vel heppnað hingað til, flestir staðirnir hafa troðfyllst og tónleikarnir í settu ný viðmið. „Þetta voru langstærstu tónleikarnir hingað til," segir Ragnar. „Þetta eru svona 200 til 500 manna staðir sem við spilum í. Svipað og meðal íslenskur tónleikastaður. Það er komin gríðarmikil gleði í mannskapinn yfir þessu."

Það getur reynst erfitt að viðhalda góðri stemningu í hópum í löngum ferðalögum á borð við þetta, en Ragnar segir að meðlimir Bloodgroup séu ennþá sáttir. „Það er aldrei að vita hvað gerist á næstu vikum," bætir hann við í gríni.

Meðlimir Bloodgroup hafa nýtt frítíma sinn, sem er oftast í rútunni á milli landa, í að forrita ljósasýningu næstu tónleika. Þá hafa þau aðeins náð að fylgjast með strákunum okkar á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer nú fram í Svíþjóð. „Við náðum með hjálp lélegrar nettengingar á frönsku rívíerunni að sjá seinni hálfleik í einum leik," segir Ragnar. „Það er mjög mikilvægt að horfa á strákanna."

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.