Grundvöllur útgáfu hruninn 12. febrúar 2011 13:30 Sala á nýjum námsbókum fyrir framhaldsskóla dróst saman um helming í fyrra. Útgefendur segja meðal annars skiptibókamörkuðum um að kenna. Sjá varla fram á að geta þróað eða gefið út nýjar bækur. Mynd/Stefán Karlsson
Grundvöllur útgáfu námsbóka fyrir framhaldsskóla er hruninn að sögn helstu útgefenda hér á landi. Þeir telja að jafnvel verði ekki þróað eða gefið út námsefni á næstunni. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir í samtali við Fréttablaðið að vendipunktur hafi verið í ár. „Við vorum að sjá samdrátt ár frá ári, en síðustu tvö ár hefur markaðurinn fyrir námsbækur í framhaldsskólum hrunið." Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, segist uggandi yfir framhaldinu. „Staðan á útgáfu kennslubóka hjá okkur er grafalvarleg og við sjáum ekki fram á að geta þróað eða gefið út nýjar bækur. Við erum að horfa upp á meira en 50 prósenta samdrátt í sölu nýrra kennslubóka á síðasta ári og þess vegna er gjörsamlega útilokað að viðhalda mörg hundruð bókatitlum við núverandi aðstæður." Egill segir nokkrar ástæður liggja þar að baki. „Það er kannski helst aukin áhersla á skiptibókamarkaði sem hefur í raun kippt grundvelli undan útgáfu og sölu nýrra kennslubóka. Þó skil ég það vel eins og árferðið er núna þar sem foreldrar og nemendur leita í ódýra vöru þar sem þeir geta fundið hana." Forlagið er umsvifamest þeirra sem gefa út bækur fyrir framhaldsskóla hér á landi en meðal annarra útgáfufélaga sem eru í sömu stöðu eru Iðnú og Bjartur. Egill segir að erfitt sé að sjá lausnir í stöðunni til skamms tíma. „Ég held að byltingin sem er í vændum verði rafbókavæðing þegar við getum boðið öllum nemum upp á íslensk kennslugögn með rafrænum hætti. Það mun hins vegar ekki gerast á einni nóttu og ég hef áhyggjur af tímanum fram að því. Þau ár geta orðið ansi strembin fyrir útgefendur." - þj
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira