Fyrsta íslenska stjórnarskráin að fæðast 28. júlí 2011 08:00 Frumvarpið var samþykkt samhljóða en sú var tíðin, segir Eiríkur Bergmann, að stjórnlagaráð var ekki svo samhljóða. Mynd/gva
Frumvarp að nýrri stjórnarskrá var samþykkt samhljóða á ráðsfundi stjórnlagaráðs í gær. Það verður síðan afhent Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis á morgun. Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur sem sæti á í stjórnlagaráði, segir mikilvægustu breytingarnar á stjórnskipulaginu vera þær að valdamiðjan verði flutt aftur til Alþingis frá ríkistjórn og að kveðið sé á um stóraukna aðkomu almennings að ákvarðanatöku. Þá á hann við að samkvæmt frumvarpinu geta 10 prósent atkvæðisbærra manna sett löggjöf frá Alþingi í þjóðaratkvæðagreiðslu og eins getur sami fjöldi komið fram með ný þingmál. Hann segir að líta megi svo á að fyrsta íslenska stjórnarskráin sé að líta dagsins ljós þar sem sú fyrri sé fengin í arf frá Dönum. Hann segir ennfremur að vinnan hafi verið erfið. „Á vissum tímapunkti var ég meira að segja viss um að þetta væri allt fyrir bí,“ segir hann. „Reyndar tel ég að við höfum öll fengið þessa tilfinningu en gæfan var sú að við fengum hana ekki á sama tíma.“ Þegar búið var að kjósa um frumvarpið söng stjórnlagaráðið „Ísland ögrum skorið“. „Við vitum vel að Salvör Nordal er formaður stjórnlagaráðs en það er engum blöðum um það að fletta að Ómar Ragnarsson er formaður þjóðlagaráðs,“ segir Eiríkur kankvís að lokum. - jse
Mest lesið Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Innlent Fleiri fréttir Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent