Líklegast munu allir vökna 28. júlí 2011 06:30 Hvar sem frómur flækist um þessa verslunarmannahelgi er það líklega skynsamlegast að hafa regngallann með eins og þetta fólk gerði í Húsafelli í fyrra. Mynd/Anton
Veðurfræðingar eru ekki öfundsverðir nú fyrir verslunarmannahelgina þegar öll spjót standa á þeim en veruleg óvissa ríkir enn um veðurhorfur næstu fjóra daga, að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Því veldur að óvíst er hvort lægð, sem nú er vestur í hafi, fer með anga sína yfir landið eður ei. Hann hvetur því fólk til að vera við öllu búið hvar sem það verður á landinu. „Það er útlit fyrir að enginn landshluti sleppi við vætu," segir hann enn fremur. „Hún verður líklegast á vestanverðu landinu á föstudag og laugardag en færist síðan yfir austanvert landið á sunnudag og mánudag." Þó segir hann nokkrar líkur á því að Vestfirðir vökni ekki um verslunarmannahelgina. „Það er heldur ekki ljóst hvernig vindurinn verður en ég myndi búast við því að það verði austanátt, ekki of sterk þó og þá hvössust hér sunnanlands en annars er þetta mjög óljóst ennþá," segir hann. Útlit er fyrir að fólk á Norðausturlandi verði að bretta niður ermarnar þegar líður á helgina. Þar hefur nú verið bongóblíða síðustu daga og hitinn farið jafnvel yfir tuttugu stig en gæti orðið um og undir tíu stigum á sunnudag og mánudag. - jse
Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira