Fyrirkomulag tollkvóta með búvörur andstætt stjórnarskrá Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. júlí 2011 18:45
Ákvæði tollalaga sem heimila landbúnaðarráðherra að ákveða tollkvóta á innfluttar landbúnaðarvörur fullnægja ekki kröfum stjórnarskrárinnar að mati umboðsmanns Alþingis. Ákvæði laganna hafa því samkvæmt þessu verið andstæð stjórnarskrá frá árinu 2005. Hinn 24. júní á síðasta ári leituðu Samtök verslunar og þjónustu til umboðsmanns Alþingis og kvörtuðu yfir því að í þremur reglugerðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum væri notast við verðtolla fremur en magntolla. Samtökin drógu í efa að það fyrirkomulag stæðist lög og töldu að við ákvörðun þessa fyrirkomulags hefði ekki verið gætt lögmætra hagsmuna innflytjenda. Umboðsmaður taldi nauðsynlegt að athuga fyrst hvort lagagrundvöllurinn sem reglugerðirnar styddust við væri fullnægjandi. Sú athugun leiddi til þeirrar niðurstöðu umboðsmanns að þær heimildir sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hefði um álagningu tolla samkvæmt tollalögum frá 2005 væru ekki í samræmi við kröfur um skattlagningarheimildir sem leiða af ákvæðum stjórnarskrár. Orðrétt segir umboðsmaður: „Eins og framangreint ákvæði 3. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 er úr garði gert er ljóst að löggjafinn hefur ákveðið að veita sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verulegt svigrúm til að ákvarða í reglugerð toll á vörur sem eru fluttar inn." Þá segir í niðurstöðu umboðsmanns að hann fái ekki annað séð en að löggjafinn hafi með reglugerðarheimild í tollalögum gengið lengra við framsal á valdi en samrýmist ákvæðum stjórnarskrár. Ákvæðið í tollalögum gangi lengra en svo að það samrýmist kröfum um skýrleika sem leiddar verða af ákvæðum 40. gr. stjórnarskrár um að skýra lagaheimild þurfi fyrir sköttum og ákvæði 77. gr. um að ekki megi fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann. Umboðsmaður fjallaði því ekki efnislega um kvörtun samtakanna, en samkvæmt þessu hefur lagagrundvöllur ákvörðunar tollkvóta verið andstæður stjórnarskránni frá árinu 2005. Álit umboðsmanns má lesa í heild sinni hér.thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira