Lítill tilgangur að halda hvalveiðum áfram til að geyma kjötið í frysti 21. júlí 2011 18:45
Steingrímur J. Sigúfsson, fjármálaráðherra, segir lítinn tilgang að halda hvalveiðum áfram til þess eins geyma kjötið í frystigeymslu Bandarísk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga refsiaðgerðum vegna hvalveiða. Þau telja íslensk stjórnvöld grafa undan markmiðum alþjóðlegra sáttmála um bann við hvalveiðum. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vonar að ekki verði mikið úr aðgerðum og ítrekar að veiðarnar séu fullkomlega löglegar. Hann segir þó annað mál hversu efnahagslega skynsamlegt sé við núverandi aðstæður að reyna hvalveiðar í atvinnuskyni í stórum stíl til útflutnings. „Ég sé lítinn tilgang með því að veiða meira til þess eins að geyma það í frystigeymslu. Ég held að allir hljóti að sjá að það hefst ekki mikið upp úr því. Það sem við þurfum auðvitað að gera er að svona endurskoða grunn þessara mála hjá okkur og setja ný lög um hvali og meta okkar heildarhagsmuni bara yfirvegað og af skynsemi," segir Steingrímur. Þeir séu fyrir löngu orðnir mjög blandaðir í þessu máli. „Við eigum ríka hagsmuni í hvalaskoðun og ferðaþjónustu og auðvitað í því að flytja hindrunarlaust út okkar sjávarafurðir og útflutningsvörur. Við verðum að viðurkenna að þetta er umdeilt mál á alþjóðavettvangi, það er veruleiki sem við búum við. Á hinn bóginn hef ég verið þeirra skoðunar að við eigum ekki að gefa frá okkur okkar fullveldisrétt til að ákvarða og ástunda sjálfbæra nýtingu í okkar sérefnahagslögsögu. Hann viljum við ekki láta frá okkur. Þannig að við þurfum að halda á málinu með þetta allt í huga," segir Steingrímur að lokum.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira