Rauði krossinn opnar fyrir söfnunarsíma vegna jarðskjálftans 27. október 2011 15:45 Yfir 500 hafa látist eftir jarðskjálftann í Tyrklandi Mynd/Rauði Krossinn
Rauði kross Íslands hefur opnað fyrir söfnunarsíma sinn 904 1500 vegna jarðskjálftans sem reið yfir Tyrkland síðasta sunnudag. Þegar hringt er í númerið bætast 1.500 kr. við næsta símreikning. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að tugþúsundir Tyrkja sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum þurfi á tafarlausri hjálp að halda. Þeir hafist við undir berum himni, og hitastig fari niður fyrir frostmark á nóttunni á þessum slóðum. „Alþjóða Rauði krossinn hefur sent út neyðarbeiðni sem hljóðar upp á 1,3 milljarða íslenskra króna til þess að styrkja neyðaraðstoð Rauða hálfmánans í Tyrklandi. Sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða hálfmánans hafa unnið sleitulaust síðan skjálftinn reið yfir við að bjarga fólki úr rústunum, koma því í skjól og dreifa matvælum til þeirra sem hafast við undir berum himni," segir í tilkynningunni. Yfir 500 manns fórust í skjáftanum um helgina sem mældist 7.2 á Richter og um 2000 manns slösuðust. Fjölda fólks er enn saknað og þúsundir hafa misst heimili sín. Upptök skjálftans voru í fjalllendi í austurhluta landsins, og hafa hjálparstarfsmenn miklar áhyggjur af fólki sem hefst úti við þar sem mjög kalt er orðið í veðri. Nauðsynlegt er að dreifa byggingarefni og tjöldum sem þola vetrarkulda sem fyrst til þeirra sem lifðu skjálftann af. „Rauði krossinn áætlar að aðstoða um 50.000 manns. Lögð verður áhersla á að koma þeim sem verst urðu úti í skjálftanum í skjól fyrir veturinn. Teppi, svefnpokar og hlýr klæðnaður eru meðal þeirra hjálpargagna sem dreift verður á næstu dögum og vikum auk byggingarefnis og tjalda. Tyrkneski Rauði hálfmáninn býr yfir mikilli reynslu af að bregðast við hamförum af þessu tagi og tók þegar til við að dreifa þúsundum tjalda og teppa til nauðstaddra strax á sunnudaginn. Rauði hálfmáninn hefur einnig dreift matvælum, vatni og eldhúsáhöldum, og veitir fólki sálrænan stuðning á staðnum. Rauði kross Íslands minnir á söfnunarsíma sinn 904 1500. Þegar hringt er í númerið bætast við 1.500 kr. við næsta símreikning. Einnig er hægt er að styrkja hjálparstarf Rauða krossins með því að greiða inn á reikning hjálparsjóðs í banka 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Sjá meira