Umboðsmaður skammar Lánasjóðinn 9. júní 2011 14:33 Tryggvi Gunnarsson, Umboðsmaður Alþingis.
Stjórn LÍN og mennta-og menningarmálaráðuneytið gáfu námsmönnum ekki fullnægjandi ráðrúm til þess að bregðast við breytingu á framkvæmd útreiknings á hámarki skólagjaldalána, en breytingin átti sér stað í lok júní á síðasta ári. Þetta kemur fram í áliti frá Umboðsmanni Alþingis, Tryggva Gunnarssyni, þar sem hann segir viðeigandi lagasjónarmiða og vandaðra stjórnsýsluhátta ekki hafa verið gætt af hálfu lánastofnunarinnar og ráðuneytisins. Breytingin sem um ræðir birtist í Stjórnartíðindum stuttu fyrir upphaf haustannar, eða þann 29. júní á síðasta ári, en í henni fólst að í stað þess að miðað væri við upphæðir fyrri skólagjaldalána eins og áður var gert, skyldi miðað við hlutfall af hámarki skólagjalda í fyrra námslandi. Þessi breyting hafði það í för með sér að hámarkslán þeirra nema sem áður höfðu fengið skólagjaldalán á Íslandi en voru á leið í dýrara nám erlendis lækkaði töluvert. Var þessi breyting sem fyrr segir birt stuttu fyrir upphaf haustannar. Umboðsmaður segir breytingarnar sjálfar innan marka laganna en þar sem þær séu íþyngjandi gagnvart borgurunum hafi stjórnvöldum borið skylda til að kynna breytinguna fyrirfram með skýrum hætti og nægilegum fyrirvara, þannig að þeir aðilar sem málið snerti hefðu raunhæft tækifæri til að gera viðeigandi ráðstafanir og bregðast við breyttri framkvæmd. Umboðsmaður beinir þeim almennu tilmælum til LÍN og mennta- og menningamálaráðuneytisins að framvegis verði tekið mið af þessum sjónarmiðum.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira