Ætlaði að kaupa tannbursta - endaði á því að kaupa vín fyrir 900 þúsund 15. janúar 2011 15:31 Macallan viskí.
Íslenskur útgerðarmaður var að skoða tannbursta þegar hann ákvað að kaupa þrjár áfengisflöskur í Fríhöfninni fyrir um 900 þúsund krónur í vikunni. Um var að ræða tvær skoskar Macallan maltviskí og eina koníaksflösku samkvæmt frétt Víkurfrétta (vf.is) um málið. Þar kemur fram að elsta flaskan hafi verið frá árinu 1996 og var þá 50 ára afmælisútgáfa frá þessum þekkta maltviskí framleiðanda. Hún var því orðin 65 ára gömul. útgerðarmaðurinn, sem á að vera þekktur maður, keypti flöskuna á rétt tæpar 400 þúsund krónur. Önnur flaska af Macallan-gerð seldist á um 300 þúsund krónur og svo fór koníaksflaskan á um 100 þúsund krónur. Flöskur af þessari gerð seljast fyrir háar upphæðir í útlöndum og eru gjarnan seldar á uppboðum, meðal annars hjá Sothebys. Þessar flöskur höfðu ekki selst í Fríhöfninni í yfir 15 ár samkvæmt Víkurfréttum. Þær höfðu verið teknar úr versluninni þegar breytingar stóðu yfir og höfðu ekki verið settar fram aftur fyrr en í byrjun vikunnar. Einn starfsmanna fríhafnarinnar á að hafa sagt að þær myndu aldrei seljast en það voru ekki allir á sömu skoðun. Útgerðarmaðurinn, sem var reyndar að leita sér að tannbursta, var á ferðinni og einn starfsmanna Fríhafnarinnar hvatti hann til að kíkja á eðalflöskurnar. „Hann var að velja sér tannbursta og ekki á leiðinni að kaupa sér vín. Ég lýsti flöskunum aðeins fyrir honum. Þetta voru fágætar viskíflöskur og koníak og ég sagði við hann að líklega myndi einhver útlendingur kaupa flöskurnar. Þá sagði maðurinn bara: Við látum það ekki gerast. Ég tek þær allar," sagði starfsmaðurinn í viðtali við Víkurfréttir.
Mest lesið Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Innlent Fleiri fréttir Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Sjá meira