400 manns hafa sent inn saursýni 1. júlí 2011 20:09
400 manns hafa sent Heilsuvernd sýni til greiningar á ristilkrabbameini frá því að sala á greiningarprófi hófst fyrir þremur mánuðum. Nokkrir hafa greinst með meinið á læknanlegu stigi. Greiningarprófið fæst í apótekum Lyfju hér á landi en úrvinnsla sýna og eftirfylgd með niðurstöðum fer fram hjá Heilsuvernd. Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, segir verkefnið hafa farið vel af stað. „Við höfum fundið nokkur kirtilæxli eða forstig af meini og það hefur verið gert með því að senda fólk til speglunar sem hefur greinst jákvætt með blóð í hægðum." Prófið, sem er auðvelt í notkun, og eftirfylgdin kosta tæpar 5000 krónur. Ríkið tekur ekki þátt í kostnaðinum en það gera hinsvegar stéttarfélög og sjúkrasjóðir. „Það er búið að vera mjög lengi þessi umræða um að hefja skimun og mörg lönd í kringum okkur eru þegar búin að gera þetta í mörg ár. Þannig að við töldum ekkert vit í því hreinlega að bíða eftir að ríkið færi af stað," segir Teitur. Hann segir ristilspeglun vera bestu leiðina til að greina sjúkdóminn en að ómögulegt sé að senda alla, sem eru í áhættuhópi, í svo viðamikla rannsókn. Prófið þrengi hins vegar þann hóp sem þarf á ristilspeglun að halda. „Þetta er annað algengasta dánarmein að völdum krabbameina á Íslandi og þriðja algengasta mein beggja kynja, þannig að þetta skiptir gríðarlegu máli. Það eru um 150 einstaklingar sem greinast á ári og 50 sem látast þannig að hver sá sem við finnum, sérstaklega því yngri sem hann er því meira skiptir það máli fyrir bæði þjóðarbúið, einstaklinginn og alla sem að því koma," segir Teitur.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira