Ætla að semja fyrst og tala svo við ríkið 12. febrúar 2011 06:30 Vilhjálmur Egilsson. ASÍ og SA ætla að setja kraft í kjaraviðræður. Stefna að þriggja ára kjarasamningi, sem taki gildi 1. júní, hafi þá náðst samkomulag um það sem að stjórnvöldum snýr. Annars verði gerður skammtímasamningur. Laun hækki í mars. Mynd/GVA
Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa náð saman um að reyna að ljúka vinnu við kjarasamning til þriggja ára. Gangi það eftir taka launahækkanir gildi í marsmánuði. Þriggja ára gildistími nýja samningsins verður hins vegar háður því að aðilarnir nái í framhaldinu niðurstöðu fyrir 1. júní í viðræðum sínum við stjórnvöld um tilteknar aðgerðir. Takist það ekki eftir mun samningur aðila vinnumarkaðarins breytast í skammtímasamning. „Þetta snýst ekki endilega um að við séum sammála um hvernig eigi að leysa hvert einstakt mál," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mörg mál þurfi að klárast, sum þeirra séu sameiginleg áhugamál SA og ASÍ en önnur ekki. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með þessu sé rofin sú kyrrstaða sem kjaraviðræður hafi verið komnar í. „Tíminn líður og við erum óþreyjufull," segir hann. Nú verði settur kraftur í viðræðurnar. Fundir á vegum Flóabandalags, iðnaðarmanna og verslunarmanna eru á dagskrá á mánudag og þriðjudag. Vilhjálmur leggur áherslu á að ríkisvaldið verði hluti af öllu ferlinu. Gylfi segir að nú sé fundin leið til að gefa Alþingi og stjórnvöldum ráðrúm til þess að ræða ýmis viðamikil mál, sem séu á borði stjórnvalda, og ná um þau niðurstöðu. Gylfi segir að það sé vissulega nýlunda að aðilar vinnumarkaðarins geri samning sín á milli áður en ljóst sé hvort niðurstaða ráðist um aðkomu ríkisvaldsins að samningum. Þetta sé hins vegar sú leið sem menn fari í ljósi aðstæðna í pólitíkinni. Gylfi segir ljóst að ASÍ og SA muni ekki ná sameiginlegri niðurstöðu um sjávarútvegsmál. Hingað til hefur SA lagt höfuðáherslu á að leysa þurfi ágreining um stjórn fiskveiða áður en gengið verði til samninga. Vilhjálmur segir að SA leggi ekki síður en áður áherslu á sjávarútvegsmál. Hins vegar þurfi að ræða fleiri brýn mál í tengslum við gerð kjarasamninga. Hvorki Vilhjálmur né Gylfi vilja ræða hugsanlegar prósentur þeirra launahækkana sem hugsanlega megi semja um í viðræðunum fram undan; það sé ótímabært á þessu stigi. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira