145 jarðskjálftar og fimm sprengingar í vikunni 12. febrúar 2011 11:36 Myndin er tekin á Austurlandi og tengist ekki fréttinni beint.
145 skjálftar voru staðsettir í vikunni og fimm sprengingar samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar. Stærsti skjálfti vikunnar, 3,4 að stærð, varð rétt suðvestan Kistufells 3. febrúar. Fjöldi frostbresta mældust norðan Vatnajökuls og allt norður að Grímsstöðum á Fjöllum. Fáir jarðskjálftar voru staðsettir í Suðurlandsbrotabeltinu þessa vikuna. Tveir skjálftar mældust suðaustan Skjaldbreiðs, tveir við Nesjavelli og einn vestan Ölkelduháls. Fjórir skjálftar voru staðsettir við Núpshlíðarháls og 15 voru staðsettir á 7-10 km dýpi rétt austan Kleifarvatns, allir á mánudag 31. janúar en eftir það dró úr virkninni við Kleifarvatn sem hefur verið viðvarandi þar síðastliðnar vikur. 5. og 6. febrúar mældust 6 skjálftar úti á Reykjaneshrygg, fáeina km SV af Geirfugladrangi. Fjörutíu jarðskjálftar voru staðsettir NA í Bárðarbungu, eða rétt suðvestan Kistufells, þeir tveir stærstu voru 3,4 og 3,2 að stærð. Skjáfltahrinur eru tíðar á þessu svæði og mældist t.d ögn stærri hrina á þessum stað í lok árs 2010. Þrír skjálftar mældust við Grímsvötn og einn við Lokahrygg sem var 3,2 að stærð. Einn skjáfti var staðsettur á Torfajökulssvæðinu. Eins og í síðustu viku var einn skjálfti staðsettur norðan í Hofsjökli. 23 skjálftar voru staðsettir í nágrenni Öskju og Herðubreiðar. Þar af voru 8 staðsettir vestur af Öskjuvatni en einnig greindust allmargir aðrir smáskjálftar aðeins á jarðskjálftamælinum við Öskju en ekki annars staðar og var því ekki unnt að staðsetja þá. Fáir skjálftar mældust þessa vikuna í Mýrdalsjökli, eða aðeins átta. Sá stærsti var 1,5 að stærð. Fjórir voru staðsettir sunnan í eða við Eyjafjallajökli, og voru þeir allir litlir. Þá hefur verið talsverð skjálftavirkni nálægt Langjökli í dag.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Sjá meira