Reknir í örfáar vikur svo að þeir fái bætur 4. mars 2011 06:00 Heilsuhælið „
Þetta heitir tímabundin rekstrarstöðvun og er mjög þekkt í fiskinum,“ segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins, um uppsagnir 38 starfsmanna stofnunarinnar. Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði verður í sparnaðarskyni lokað í níu vikur í sumar og sumarhótel rekið í staðinn. Af 115 starfsmönnum hefur 38 verið sagt upp en þeir eiga að snúa aftur þegar heilsuhælið verður opnað að nýju. Flestir starfsmennirnir eiga sex vikna sumarfrí og taka það á meðan lokunin varir. Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri HNLFÍ, kveðst hafa rætt við Vinnumálstofnun um tímabundna rekstrarstöðvun heilsuhælisins og fengið staðfest að fólk ætti rétt á atvinnuleysisbótum þann tíma sem orlofið nái ekki yfir. Samráð hafi einnig verið við stéttarfélög. „Við segjum upp fólki en gerum ekki ráð fyrir öðru en að starfsemin fari í gang aftur að lokuninni yfirstaðinni,“ segir Ólafur. Um 30 af þeim 38 sem sagt er upp eru félagsmenn í Eflingu. „Heilsustofnunin fór yfir það með Vinnumálastofnun hvort það væri ekki rétt mat að starfsmennirnir myndu þá strax í framhaldinu fá atvinnuleysisbætur og þeir fengu það staðfest að það væri rétt,“ segir Harpa Ólafsdóttir, yfirmaður kjarasviðs Eflingar. Unnur Sverrisdóttir, forstöðumaður stjórnsýslusviðs Vinnumálastofnunar, segir hins vegar alls ekkert samráð hafa verið haft við stofnunina. „Það hringdi maður frá Náttúrulækningafélaginu og bar þetta undir mig og ég sagði honum að mín fyrsta innstilling væri að þetta gengi engan veginn svona,“ segir Unnur sem kveður af og frá að um sé að ræða sömu aðstæður og hjá fiskvinnslufyrirtækjum. „Það eru algerlega sérlög sem eiga bara við um nákvæmlega þá starfsgrein.“ Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir málið vafasamt. „Við teljum að þarna sé í raun verið að misnota atvinnuleysisbætur,“ segir Kristín, sem kveðst jafnframt vonsvikin yfir því að heilbrigðisyfirvöld leyfi stofnun, sem styrkt sé af ríkinu á heilsársgrundvelli, að komast upp með loka fyrir starfsemina. - gar
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Fleiri fréttir Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Sjá meira