73 of margir á hundrað manna vínveitingastað 19. janúar 2011 15:39 Miðbærinn á fullum krafti um helgarnótt. Myndin er úr safni.
173 gestir voru á einum þeirra vínveitingastaða sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði um síðustu helgi, en staðurinn hafði aðeins leyfi fyrir 100 gestum að hámarki. Á öðrum stað reyndust einnig of margir umfram leyfilegan gestafjölda, auk þess sem innandyra voru ungmenni er veitt hafði verið áfengi, en hvorutveggja er brot á ákvæðum laga og reglna. Þá urðu lögreglumenn vitni að því að gestir báru áfengi út af staðnum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að loka fjórum stöðum um helgina. Lögreglan sendi nýlega leyfishöfum nokkurra vínveitingahúsa eftirfarandi boð: „Að gefnu tilefni vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu benda á ákv. 19. gr. áfengislaga: „Bannað er að bera með sér áfengi inn á veitingastaði, annað en það sem þangað er flutt til heimilla veitinga. Á sama hátt er bannað að bera með sér áfengi út af veitingastað." „Talsvert hefur verið um að gestir vínveitingastaða hafi borið með sér áfengi í glösum og flöskum út af stöðunum að næturlagi um helgar. Glerílátin hafa síðan verið brotin með tilheyrandi hávaða og ónæði. Í nokkrum tilvikum hafa þau verið notuð til að kasta í eða berja á fólki með alvarlegum afleiðingum. Vinsamlegast bendið dyravörðum á mikilvægi þess að fylgja samviskusamlega eftir ofangreindu ákvæði. Lögreglan mun á næstunni fylgjast sérstaklega með að það verði gert,“ segir ennfremur í skilaboðum lögreglunnar.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Fleiri fréttir Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Sjá meira