Tökur á Heimsendi hefjast í júní Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. maí 2011 19:39 Ragnar Bragason segir að tökur hefjist í byrjun júní. Mynd/ Vilhelm.
Tökur á nýjum framhaldsþáttum í leikstjórn Ragnars Bragasonar, Heimsendi, hefjast í byrjun júní og standa fram á verslunarmannahelgi. Að því tilefni hafa aðstandendur þáttanna ákveðið að auglýsa eftir aukaleikurum í þættina. „Sögusviðið er þessi afskekkta geðdeild og það er náttúrlega þarna mikið af fólki, bæði vistmenn og starfsfólk. Þannig að ég er bara að leita að því sem ég kalla bakgrunnsleikara, eða fólki sem er þarna allan tímann. Þetta er svona aðeins meira en það sem kallast að vera statisti, þar sem fólk birtist í einhverjum hóp. Þetta er fólk í kjarna af vistmönnum sem eru þarna á þessum stað," segir Ragnar Bragason í samtali við Vísi. Tökur á þáttunum fara fram á Arnarholti á Kjalarnesi. „Þar stendur tómt húsnæði og beið eftir okkur," segir Ragnar. Bæði inni- og útitökurnar verða þar. „Þetta er ein verslunarmannahelgi á Arnarholti," segir Ragnar, en heimilið muni þó heita Heimsendi og þannig sé nafn þáttanna, Heimsendir, komið til. Gert er ráð fyrir að fyrstu þáttur í þáttaröðinni verði frumsýndur í október. Með aðalhlutverk í þáttunum fara Pétur Jóhann Sigfússon, Jörundur Ragnarsson, Halldór Gylfason, Sigurður Sigurjónsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Karl Ágúst Úlfsson, Brynhildur Guðjónsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir. Ragnar segir að verið sé að leita að aukaleikurum sem eru komnir á miðjan aldur og eldri. Þeir sem hafa áhuga er bent á að senda tölvupóst á aukaleikarar@sagafilm.is.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira