Segja það klúður að kjarasamningar hafi ekki náðst fyrr 6. maí 2011 13:27 Gylfi og Vilhjálmur voru sáttir við niðurstöðu samninganna.
Stjórn Félags atvinnurekenda telur að Samtök atvinnulífsins hafi klúðrað góðu tækifæri til að ná ásættanlegum kjarasamningi þann 15. apríl síðastliðinn samkvæmt yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér. Vill stjórnin meina að þá hafi legið fyrir samningur sem hefði falið í sér töluvert miklar, en þó réttlætanlegar launahækkanir að mati atvinnurekenda. Sá samningur virtist ekki síður hugnast launþegahreyfingunni og fór nær því að tryggja hér stöðugt verðlag. Svo segir orðrétt: Tækifæri til að ljúka við þennan samning gafst hins vegar aldrei, vegna ofuráherslu Samtaka atvinnulífsins á óskyld málefni. Fyrir vikið standa fyrirtækin nú frammi fyrir kjarasamningi sem flest þeirra ráða ekki við. Mikil hætta er á að störfum fækki og verðbólga éti upp ávinninginn. Meira að segja forsvarsmenn SA viðurkenna að boginn sé yfirspenntur. Stjórn Félags atvinnurekenda telur að launahækkanir í kjarasamningunum séu of miklar, sérstaklega þegar litið er til eingreiðslna og launahækkana á næstu 9 mánuðum. Ekki síst eru hækkanirnar íþyngjandi fyrir rekstur sem eingöngu hefur tekjur innanlands. Afleiðingin gæti orðið uppsagnir hjá stórum hluta fyrirtækja, þvert á eiginlegt markmið langtímakjarasamninga. Launþegar hafa tekið á sig mikla kjaraskerðingu og þannig borið hitann og þungann af hruni efnahagslífsins. Óþreyjan eftir betri tíð er því fullkomlega skiljanleg. Þær kjarabætur þurfa hins vegar að vera í takt við getu fyrirtækjanna. Ekki bætir úr skák að ríkisvaldið skattpínir fyrirtæki og launþega sem aldrei fyrr. Félag atvinnurekenda bendir á að lækka mætti tryggingagjald meira en gert er ráð fyrir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til að gera fyrirtækjunum kleift að mæta kjarasamningunum. Vilyrði ríkisstjórnarinnar hafa lítið sem ekkert að segja fyrir flest þau fyrirtæki sem hafa böðlast í gegnum algjört hrun í eftirspurn og eru að reyna að þrauka gjörningaveður efnahagslífsins. Félag atvinnurekenda er sjálfstæður samningsaðili gagnvart m.a. VR og Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ljóst er að kröfur viðsemjenda félagsins verða í megindráttum hinar sömu og samið hefur verið um á milli SA og ASÍ. Þeir sem á eftir koma hafa fyrir vikið lítið svigrúm. Félag atvinnurekenda var hins vegar tilbúið til samninga við viðsemjendur á sambærilegum grunni og lá fyrir milli SA og ASÍ þann 15. apríl sl.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira