Dreifðu fíkniefnum í Fjallabyggð - dópinu smyglað frá Reykjavík 6. maí 2011 14:46 Þrír karlmenn voru handteknir á Siglufirði vegna málsins. Mynd: Vilhelm
Síðastliðinn miðvikudag handtók lögreglan á Akureyri þrjá karlmenn á Siglufirði. Handtökurnar voru framkvæmdar í kjölfar rannsóknar sem snýr að dreifingu fíkniefna í Fjallabyggð. Á sama tíma var einn maður til viðbótar, búsettur í Reykjavík, færður til skýrslutöku þar. Tveir Siglfirðinganna voru grunaðir um að hafa í febrúar og mars á þessu ári tvisvar fengið fíknefni afhent af manninum sem búsettur er í Reykjavík. Þriðji Siglfirðingurinn var grunaður um að hafa flutt aðra sendinguna frá Reykjavík til Siglufjarðar. Samtals er talið að um hafi verið um að ræða 400 grömm af marijuana og að stærstur hluti efnanna hafi farið í dreifingu í Fjallabyggð. Á rannsóknartímanum hafði lögreglan á Akureyri tvisvar afskipti af öðrum Siglfirðingnum og haldlagði þá samtals um 25 grömm af marijuana hjá honum. Við rannsókn málsins naut lögreglan á Akureyri aðstoðar fíkniefnadeildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Í aðgerð sem framkvæmd var í Reykjavík þann 14. apríl síðastliðin voru svo tveir mannana handteknir, Reykvíkingurinn og einn Siglfirðinganna sem hafði gert sér ferð suður. Í fórum mannanna fundust um 200 grömm af kannabisefnum auk smáræðis af kókaíni. Við húsleitir sem framkvæmdar voru í Reykjavík í framhaldinu voru haldlagðir peningar, hundruðir þúsunda, sem talið er fullvíst að sé greiðsla fyrir þau fíkniefni sem Siglfirðingarnir fengu afhent í mars og apríl. Auk þess fundust um 100 grömm af kannabisefnum til viðbótar við húsleitirnar. Játningar liggja fyrir hjá þremur mannanna og telst málið upplýst. Samtals er því talið að Siglfirðingarnir hafa fengið um 600 grömm af marijuana afhent hjá manninum sem búsettur er í Reykjavík. Lögregla haldlagði sem fyrr segir rúm 200 grömm af efnunum og peninga sem taldir eru greiðsla fyrir hinn hlutann. Lögreglan minnir á fíkniefnasímsvarann 800-5005 og netfangið info@rls.is þar sem koma má á framfæri upplýsingum um fíkniefnamisferli, nafnlaust.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira