Íslandsvasinn sleginn á 3,5 milljónir - Gallerí Fold bauð fyrir þrjá aðila 29. nóvember 2011 10:45 Vasinn góði með myndinni af Bessastöðum.
Postulínsvasi með mynd af Bessastöðum var í gær seldur hjá danska uppboðshaldaranum Bruun Rasmussen. Kaupandinn greiðir 3,5 milljónir króna fyrir vasann. „Þetta er stórmerkilegur gripur," segir Jóhann Hansen hjá Gallerí Fold um postulínsvasann en samkvæmt vefsíðunni Listapóstinum þá bauð starfsfólk gallerísins í vasann fyrir þrjá mismunandi aðila. Þrátt fyrir þennan mikla áhuga fékk enginn þeirra þó gripinn. Myndin á vasanum var máluð á 19. öld af Dananum F. T. Kloss þegar hann kom til Íslands ásamt Friðriki Danakonungi. Talið er að tveir vasar hafi verið gerðir en annar þeirra brunnið hjá konungsfjölskyldunni. Hinn var gefinn Scheel-fjölskyldunni, sem var í gær að selja gripinn. Vasinn myndi án efa sóma sér vel á Bessastöðum og hafa margir velt því fyrir sér hvort nokkur leið sé að vasinn endi þar. Listasafn Íslands fer með öll mál varðandi listaverk á Bessastöðum og öðrum opinberum stöðum. Þar á bæ kannaðist enginn við postulínsvasann glæsilega og ekki heldur forsetaritarinn Örnólfur Thorsson. „Við höfum nú ekki ráðrúm til þess að kaupa mikið þessa dagana," segir hann.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira