Capacent kemur ekki að ráðningu forstjóra Bankasýslunnar Erla Hlynsdóttir skrifar 12. nóvember 2011 12:29 Guðrún Ragnarsdóttir, er formaður nýrrar stjórnar Bankasýslunnar
Stjórn Bankasýslu ríkisins mun skipa þriggja manna ráðninganefnd vegna ráðningar nýs forstjóra Bankasýslunnar. Ráðningafyrirtækið Capacent mun ekki koma að ferlinu, líkt og áður. Ný stjórn Bankasýslu ríkisins hefur auglýst laust til umsóknar starf forstjóra Bankasýslunnar. Auglýsingin er samhljóða fyrri auglýsingu um stöðuna, en hún er aðgengileg á vefnum Starfatorg. . „Stjórnin hefur ákveðið að skipa sérstaka ráðningarnefnd til að annast ráðningarferlið þannig að það verður ekki ráðningarstofa sem heldur utan um það eins og síðast," segir Guðrún Ragnarsdóttir, formaður stjórnar Bankasýslunnar. „Við ákváðum að velja þessa leið þar sem hún hefur verið notuð með góðum árangri í ráðningum innan stjórnsýslunnar og þá er yfirleitt farin sú leið að það eru skipaðir þrír aðilar í nefndina. Við eigum eftir að gera það og munum væntanlega gera það eftir helgi," segir Guðrún. Ekki liggur fyrir hvort umsækjendur fara í gegn um samskonar próf og í fyrra ráðningarferli. „Nefndin kemur með tillögur að mótun á ferlinu, það er að segja hvaða ferli það verður sem umsækjendur þurfa að fara í gegn um. Það er stjórnin sem alltaf ber ábyrgð á þessu ferli og stjórnin mun alltaf þurfa að samþykkja þá aðferð eða það ferli sem nefndin leggur til. Síðan er það nefndin sem kemur með tillögur að þremur umsækjendum, líklegast, í lokin til stjórnarinnar og stjórnin síðan velur úr þeim hópi. Þetta er alltaf á ábyrgð stjórnarinnar en nefndin er framkvæmdaraðili fyrir hönd stjórnar," segir hún. Afar fáir sóttu um stöðuna þegar hún var auglýst í fyrra skipti. Spurð hvort gerðara hafa verið sérstakar ráðstafanir til að auka áhuga fólks á að sækja um, segir Guðrún: „Fyrsta skrefið er alltaf að auglýsa og ég vil nota tækifærið til að hvetja fólk til að sækja um. Þetta er auðvitað spennandi starf og gríðarlegt tækifæri til að fá að taka þátt í að móta framtíðarmynd fjármálakerfisins hér á Íslandi." Hún segist vonast til þess að umræðan um Bankasýsluna að undanförnu leiði til þess að fleiri sæki um stöðuna. Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Fleiri fréttir Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Sjá meira