Innlent

Borgin vill verja sex og hálfum milljarði til framkvæmda

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur.
Framkvæmdastigi Reykjavíkurborgar verður áfram haldið háu en varið verður 6,5 milljörðum í framkvæmdir, sem snúast einkum um verkefni sem auka ekki fastan rekstrarkostnað borgarinnar verði frumvarp til fjárhagsáætlunar hjá Reykjavíkurborg samþykkt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, Jón Gnarr leggur frumvarp til fjárhagsáætlunar fram til fyrri umræðu á borgarstjórnarfundi í dag.

Verði frumvarpið samþykkt munu fasteignagjöld lækka úr 0.225% í 0.2%. Tekjur af fasteignaskatti af íbúðarhúsnæði lækka um 75 milljónir króna en hefðu að óbreyttu hækkað um 230 mkr.

Lóðarleiga vegna íbúðarhúsnæðis hækkar hins vegar úr 0.165% í 0.2% til mótvægis og fara tekjur af henni úr 258 milljónir króna í 350 mkr. Þetta tryggir að fasteignagjöld verða svipuð að krónutölu hjá langflestum fasteignaeigendum á milli ára.

Reykjavíkurborg mun því áfram bjóða upp á ein lægstu álagningargjöld fasteigna á landinu að því er greinir frá í tilkynningu frá borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×