Bjarni varði ákvörðun sína í Icesave Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. nóvember 2011 17:14 Bjarni varði ákvörðun sína í Icesavemálinu. mynd/ anton.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, varði ákvörðun sína í Icesavemálinu við setningu landsfundar flokksins í dag. Fundurinn var settur klukkan fimm. Bjarni gagnrýndi jafnframt frammistöðu ríkisstjórnarinnar í málinu. Eins og kunnugt er greiddi Bjarni atkvæði með þeim Icesave samningum sem urðu til þegar Lee Buchheit stýrði samninganefnd Íslands. Bjarni sagði á fundinum að með afstöðu sinni til þeirra samninga hefði hann ekki gengið gegn ályktun landsfundar sjálfstæðisflokksins. „Áður en landsfundur ályktaði tók ég málið upp við alla forsætisráðherra Norðurlandanna á Norðurlandaráðsþingi. Ég flaug til Kaupmannahafnar í þeim tilgangi einum að eiga fund með utanríkisráðherra Danmerkur til að afla stuðnings við okkar sjónarmið. Ég fór einnig til Hollands til fundar við hollenska og breska ráðherra til að útskýra sjónarmið okkar Íslendinga. Um haustið 2010 sótti ég auk þessa landsfund Breska íhaldsflokksins fyrst og fremst í þeim tilgangi að ná fundi forsætisráðherra og utanríkisráðherra Bretlands. Það tókst og þar krafðist ég þess að Bretar létu af kröfum sínum í málinu. Og allt þetta hafði áhrif. Málið var gjörbreytt þegar eftir þessa miklu baráttu," segir Bjarni. Hann segir að niðurstaða sín í Icesave málinu hafi verið byggð á því sem hann taldi best og skynsamlegast fyrir íslenska þjóð, fyrir íslenska hagsmuni. „Það voru hagsmunir heildarinnar, þjóðarinnar allrar, sem drifu mig áfram í Icesave málinu. Ég segi fullum fetum: ég er stoltur af þeim mikla árangri sem viðspyrna okkar á Alþingi skilaði. Málinu er enn ekki lokið - angar þess eru fyrir dómstólum í Evrópu. Endanleg málalok fást hins vegar ekki að lögum nema fyrir íslenskum dómstólum," segir Bjarni.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira