Innlent

Gæsluvarðhald: Grunaður um að vera stórtækur fíkniefnasali

Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um fíkniefnamisferli. Maðurinn er erlendur ríkisborgari og hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Hann var handtekinn í gær en samhliða var lagt hald á umtalsvert magn af sterkum fíkniefnum en maðurinn er grunaður um að vera stórtækur í sölu og dreifingu fíkniefna. Málið er í rannsókn en það hefur verið unnið í samvinnu við tollyfirvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×