Innlent

Jólabasar á Grand Hótel

Hinn árlegi jólabasar Hringsins verður haldinn á Grand Hóteli í dag. Jólabasarinn er afrakstur ársvinnu félagskvenna en Hringskonur hefja ávallt undirbúning í janúar og hittast svo vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna.

Allur ágóði rennur til góðra málefna Hringsins. Basarinn hefst klukkan 13 en þar verða til sölu hannyrðir, jólaskraut, jólakort og kökur að hætti Hringskvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×