Innlent

Fornar gersemar á heimilum landsins

Gripir úr innbúi fólks voru greindir á Þjóðminjasafninu í dag.
Gripir úr innbúi fólks voru greindir á Þjóðminjasafninu í dag.
Þjóðminjasafnið bauð í dag almenningi að koma með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum safnsins. Greiningardagurinn var vel sóttur og komu þar margir góðir gripir í ljós.

Til dæmis mátti sjá silfur súpuskeið frá átjánhundruð fjörutiu og fimm, útskorna taflmenn frá nítjándu öld og gamlan stokk sem áður geymdi barnaleikföng.

Safnið segir greiningardaga bæði fróðlega fyrir gesti safnsins sem og starfsfólk. Með því gefist tækifæri til að sjá marga og áhugaverða gripi sem leynist á heimilum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×