Salvör formaður samráðshóps í tengslum við ESB viðræður 7. nóvember 2011 15:19 Salvör Nordal, formaður hópsins.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skipaði í dag Salvöru Nordal, heimspeking og forstöðumann Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, formann samráðshóps í tengslum við samningaviðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Varaformenn samráðshópsins eru Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og forseti Sögufélags og Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá segir í tilkynningu að utanríkisráðherra muni á næstunni skipa tuttugu fulltrúa til viðbótar í samráðshópinn. „Við val á þeim verður sérstök áhersla lögð á kynjajafnvægi, jafnvægi á milli landshluta, höfuðborgarsvæðis og dreifbýlis, sem og á andstæð sjónarmið í Evrópumálunum. Samráðshópurinn getur kallað til frekara samráðs fulltrúa stjórnmálaflokka, félagasamtaka, hagsmunasamtaka og einstaklinga um þau efnisatriði er tengjast samningaviðræðunum.“ Samráðshópurinn mun eiga reglulega fundi með aðalsamningamanni og samninganefnd Íslands og fá upplýsingar um samningsafstöðu í einstökum málum og stöðu og framvindu viðræðnanna. „Hópurinn mun leggja mat á framkomnar upplýsingar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við aðalsamningamann og samninganefnd Íslands. Eitt meginhlutverk samráðshópsins er jafnframt að miðla upplýsingum áfram til landsmanna og stuðla þannig að málefnalegri umræðu í þjóðfélaginu um hagsmuni Íslands í viðræðunum við Evrópusambandið og áhrif mögulegrar aðildar Íslands.“ Þá segir að skipun samráðshópsins sé í samræmi við álit meirihluta utanríkismálanefndar með þingsályktunartillögunni um að fela ríkisstjórninni að sækja um aðild að Evrópusambandinu en í því er kveðið á um að aðkoma íslenskra hagsmunaaðila og félagasamtaka að ferlinu verði á sem breiðustum grunni. „Helstu hagsmuna-og félagasamtök á Íslandi eiga nú þegar beina hlutdeild í viðræðuferlinu í gegnum fulltrúa sína í þeim tíu samningahópum sem starfa náið með samninganefnd Íslands. Markmiðið með skipan samráðshópsins er að styrkja enn frekar þátttöku ólíkra einstaklinga og þjóðfélagshópa í aðildarviðræðunum og tryggja að Íslendingar fái hlutlægar upplýsingar um Evrópumálin.“
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent