Innlent

Kornhænan á Selfossi komin heim

Kornhænan, sem vistuð var á lögreglustöðinni á Selfossi í fyrrinótt, eftir að hafa fundist villt inn í miðjum bæ, komst til síns heima í gær, eftir að eigandinn heyrði af henni í fréttum.

Hann gaf þá skýringu á flótta hænunnar að hún hafi orðið skelfingu lostin þegar hundur komst inn í hænsnakofann og gerði þar mikinn usla.

Hænunni varð ekki meint af og naut hún góðs atlætis hjá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×