Skoða hvort öll börn fædd 2010 fái pláss á næsta ári Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. nóvember 2011 11:34
Reykjavíkurborg skoðar nú hvort svigrúm sé til þess í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár að taka árgang barna sem fæddur er árið 2010 í áföngum inn í leikskólana. Á fyrri hluta ársins yrðu börn sem fædd eru snemma á síðasta ári tekin inn. Önnur börn úr árganginum yrðu í síðasta lagi tekin inn eftir sumarleyfi þegar elstu leikskólabörnin fara í grunnskóla. Reykjavíkurborg segir að inntöku barnanna á næsta ári verði hraðað eftir fremsta megni og þau tekin inn um leið og pláss losna. Engin áform séu um að fækka fólki á leikskólum Reykjavíkurborgar. Um 100 laus rými eru nú þegar fyrir hendi í leikskólunum, meðal annars vegna viðbótarhúsnæðis sem komið var upp við nokkra þeirra í haust til að mæta hinum stóra 2009 árgangi sem þegar er kominn inn í leikskólana. Reykjavíkurborg er því ágætlega í stakk búin til að taka við nýjum og stórum árgangi barna á næsta ári. Hins vegar er húsnæðiskostnaður einungis 8 % af kostnaði við hvert leikskólapláss. Langmestur kostnaður er vegna launa starfsfólks. Ekki er til fjármagn til að mæta viðbótarkostnaði vegna lausra leikskólaplássa á þessu ári en verið er að skoða hvort hægt sé að hraða inntöku elstu barnanna. Mikið átak þurfti til að koma hinum stóra árgangi 2009 inn í leikskólana á þessu ári, bætt var við húsnæði og framlög til leikskólana aukin um hundruðir milljóna. Hvert leikskólapláss kostar um 2 milljónir á ári en Reykjavíkurborg þjónustar nú um 7.000 leikskólabörn. Rekstur á leikskólum Reykjavíkurborgar kostar um 10 milljarða á ári.
Mest lesið Magnús Þór lést við strandveiðar Innlent Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Innlent Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Innlent Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Erlent Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Innlent „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ Innlent Beðið eftir krufningarskýrslu Innlent Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Lágkúra og della að mati ráðherra Innlent Fleiri fréttir Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Taka þurfi ákvörðun um sameiningu vinstrisins fyrr en síðar Samfélagið fari ekki á hliðina án tíufrétta Yfir helmingur drengja í sjötta bekk lent í slagsmálum Þjónusta sérgreinalækna við börn nú án endurgjalds Mesta fylgi síðan 2009 Börn í slagsmálum, arðbær bjórsala og dekurprinsessa Beðið eftir krufningarskýrslu Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Vill tryggja bráðaviðbragð í Öræfum allan ársins hring Lágkúra og della að mati ráðherra Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Bundið slitlag að fossinum Dynjanda í næsta mánuði Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel Sjá meira