Atli hættir þingmennsku - jafnvel á þessu kjörtímabili 8. nóvember 2011 12:00
Atli Gíslason óháður þingmaður ætlar að hætta þingmennsku, jafnvel á þessu kjörtímabili. Varamaður Atla er í þingflokki Vinstri grænna sem þýðir að brotthvarf hans myndi styrkja stjórnarmeirihlutann. Atli segist hafa verið afvegaleiddur. Atli var gestur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem hann fór meðal annars yfir aðdraganda þess að hann gekk í Vinstri græna árið 2003. Það hafi fyrst og fremst verið vegna hugsjóna og nefndi hann þar kvennfrelsismál, umhverfismál og andstöðuna við ESB. Fyrir kosningarnar 2009 hafi hann barist hart gegn ESB og talað sig ráman gegn Icesave, þar sem Steingrímur J. Sigfússon hafi verið fremstur í flokki með hnefann á lofti. Ríkisstjórnin hafi síðan verið stofnuð eftir kosningar árið 2009 og skömmu síðar hafi forysta VG skipt um skoðun í veigamiklum málum á borð við Icesave og inngönguna í ESB. Atli gekk síðan úr þingflokki Vinstri grænna, og endanlega úr flokknum á flokksþingi nú fyrir skömmu. Undir lok viðtalsins var hann spurður hvort hann ætlaði að halda áfram á þingi og sagðist hann ekki eiga von á því. Hann segir einu sinni ekki víst hvort hann klári þetta þing sem nú situr. „Ég er svona að hugleiða það.“ Varamaður Atla er Soffía Arndís Sigurðardóttir en hún er í þingflokki Vinstri grænna. Það er því ljóst að brotthvarf Atla myndi styrkja stjórnarmeirihlutann á Alþingi.
Mest lesið Stór lögregluaðgerð í Laugardal Innlent Falsaði bréf frá skólastjóra á kostnað Kennarasambandsins Innlent Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Erlent Hefði stoppað Magga Mix á punktinum Innlent Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Fjölskyldan franska sendi ættingjum erfðaskrá frá Íslandi Innlent Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Innlent Hælisleitandi fór huldu höfði í þrjú ár og fleygði sér svo niður stiga Innlent Rúmlega 300 ökumenn sviptir eða sektaðir í dag á Kringlumýrarbraut Innlent Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Innlent Fleiri fréttir Þingflokksformenn semja inn í nóttina Krefjast bóta á umferðaröryggi í kjölfar alvarlegs slyss sjö ára drengs Vill palestínska fánann niður við ráðhúsið Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Minnihluti verði að sætta sig við að hann sé ekki við völd Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Taldi ekki ástæðu til að kalla inn varamann á meðan hún fór í frí „Börnin útskrifast með bókstaf hjá okkur en tölur í framhaldsskóla“ Stór lögregluaðgerð í Laugardal Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Gæsluvarðhald frönsku konunnar framlengt Málþóf, hætta í umferðinni og umdeildur fáni Birna tekur sæti Áslaugar á þingi Afkomanda Trampe greifa hleypt inn í Alþingishúsið Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Þyrlan sækir slasaðan göngumann í Patreksfjörð „Mun koma í ljós“ hvort kennarar eða Tripical þurfi að endurgreiða Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Fjórtán fengu úthlutað fræðimannadvöl í Jónshúsi Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Sýklalyfjaónæmar bakteríur greindust í íslenskum svínum Þrýst á flugmenn Landhelgisgæslunnar meðan samningar tefjist „Mjög óeðlileg nálgun“ Óvenjulegt málþóf og lítill pólitískur ávinningur Palestínski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Hefði stoppað Magga Mix á punktinum „Það er samkeppni um starfsfólk“ Landspítalaforstjóri fagnar svörtu skýrslunni Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Krefur ráðuneytið svara um föstudagslokun Sjúkratrygginga Sjá meira