Innlent

Fimm mannlausir bílar runnu á aðra

Árekstur.is sérhæfir sig í þjónustu við fólk sem lendir í umferðaróhöppum. Á myndinni eru bílar fyrirtækisins.
Árekstur.is sérhæfir sig í þjónustu við fólk sem lendir í umferðaróhöppum. Á myndinni eru bílar fyrirtækisins.
Um tuttugu árekstrar urður á höfuðborgarsvæðinu í dag, samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is. Einn bíll er óökufær eftir árekstur við Ástorg í Hafnarfirði nú rétt fyrir klukkan sex. Fimm af þessum tuttugu árekstrum urðu með þeim hætti að mannlausir bílar runnu á aðrar bifreiðar. Árekstur.is brýnir fyrir ökumönnum að ganga vel frá bifreiðum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×