Fjöldauppsagnir hjá verktökum Kristján Már Unnarsson skrifar 31. október 2011 18:56
KNH-verktakar á Ísafirði sögðu í dag upp öllum starfsmönnum sínum, þrjátíu og þremur talsins. Þá misstu fimmtán manns vinnuna í dag hjá Suðurverki. Forstjóri Suðurverks spyr hvar öll störfin séu sem búið er að lofa og segir að það eina sem stjórnvöld komi í verk séu skattahækkanir. Báðir bera verktakarnir við verkefnaskorti eftir að gerð Suðurstrandarvegar lauk um helgina. Hjá Suðurverki segjast menn aldrei áður í 44 ára sögu fyrirtækisins hafa verið án verksamnings og segir Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, að þetta sé grafalvarleg staða. Tíu manns létu af störfum hjá Suðurverki í dag og fimm til viðbótar var sagt upp, ofan á mikla fækkun á undanförnum árum. Dofri segir að þegar mest var, í framkvæmdunum á Austurlandi, hafi nærri 300 manns unnið hjá fyrirtækinu en geti orðið 30 í vetur. Hann vonast til að geta haldið þessum lágmarksmannskap áfram en vinnan verði lítil, við viðhald tækja og kannski einhver smáverk sem falli til. Dofri segir marga fara á atvinnuleysisbætur en aðrir leiti til Noregs og fleiri landa. Hann segir óvíst að allir snúi heim aftur, mjög góður mannskapur sé þegar farinn til starfa erlendis og það sé grafalvarlegt mál að missa góða menn, ef einhverjar framkvæmdir verði á Íslandi á næstunni. En hvaða skilaboð sendir hann stjórnvöldum? Að bretta upp ermarnar og segja fólki sannleikann um hvað eigi að verða á Íslandi á næstunni, svarar Dofri. Það sé lofað og lofað en ekkert gerist. Hvar eru öll þessi sjöþúsund störf sem áttu að verða til, spyr hann. Það eru bara skattar og skyldur sem menn fá í hnakkann, hvort heldur það eru einstaklingar eða fyrirtæki.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira