Tabú að ræða um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði 31. október 2011 21:26 Ríkisútvarpið mynd/GVA „
Það er nú dæmi um stöðu að okkar mati sem er ekki á jafnréttisgrundvelli," sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, spurður um stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Í þættinum sagði Páll Gunnar að víða í löndunum í kringum okkur sé hægt að reka fjölmiðla af almannafé. „En það sem við höfum verið að leggja áherslu á og beindum í áliti til stjónvalda árið 2008 að þáttaka RÚV á auglýsingamarkaði, sérstaklega, skekkjir stöðuna í samkeppni á þessum markaði. Þarna er þá RÚV að kosta fjölmiðlarekstur bæði af almannafé og taka þátt í samkeppni um auglýsingatekjur við keppninautana sem hafa ekki sama aðgang að almannafé." Páll Gunnar sagði að í álitinu hafi komið fram að eina leiðin til að laga skekkjuna væri að RÚV færi út af auglýsingamarkaði. „Það var ekki fallist á það. Við lögðum áherslu á það að það yrðu settar skýrari reglur um þáttöku RÚV á auglýsingamarkaði og af einhverju leyti var það lagað, en kannski ekki nóg. Ef ég man rétt hefur eftirlitsstofnun EFTA fyrr á þessu ári beint því til stjórnvalda að endurskoða þáttöku RÚV á auglýsingamarkaði." Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi einnig málefni RÚV í þættinum í dag. Hann sagði að það hafi verið „tabú" að ræða um stöðu ríkisfyrirtækisins á markaðnum. En afhverju? „Það er góð spurning. Ég held að menn séu hræddir við fjölmiðlana og það sé ekki auðvelt að taka þá umræðu." Hann var spurður að því hvort að það sé eðlilegt að RÚV sé á auglýsingamarkaðnum: „Mér finnst það ekki eðlilegt," sagði Guðlaugur Þór. Hægt er að hlusta á viðtalið við Pál Gunnar og Guðlaug Þór með því að smella á hlekkinn hér að ofan.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Sjá meira