Innlent

Skora á stjórnvöld að skilgreina hvað felist í sjúkratryggingu

Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands
Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands
Læknafélag Íslands skorar á stjórnvöld að skilgreina hvaða heilbrigðisþjónusta felst í sjúkratryggingu almennings á Íslandi. Læknar telja það í höndum velferðarráðherra að ákveða hvar skerða eigi heilbrigðisþjónustu en ekki forstjóra stofnana.

Aðalfundur Læknafélags Íslands var haldinn í gær og í fyrradag í Kópavogi. Fundurinn skorðaði meðal annars á stjórnvöld að skilgreina hvaða heilbrigðisþjónusta teljist felast í sjúkratryggingu almennings á Íslandi.

Þorbjörn Jónsson er nýkjörinn formaður Læknafélags Íslands. Hann segir lækna líta svo á að niðurskurður í heilbrigðismálum sé orðinn svo mikill að ekki lengur sé hægt að tala um hagræðingaraðgerðir heldur verði afleiðing sparnaðarins sú að hætt verði að veita ákveðna þjónustu. Læknar telji það vera pólítíska ákvörðun að ákveða hvaða þjónustu verði þá hætt að veita en ekki forstjóra stofana.

„Það er eðlilegt að þegar það er ákveðið að skera niður þjónustu eins og til dæmis líknardeildarþjónustu þá sé það ekki eingöngu einhliða ákvörðun forstjóra spítalans heldur hlýtur það að vera ráðherrans að ákveða forgangsröðun í því máli. Þar sem það eru yfirvöld sem ákveða fjárveitingar," segir Þorbjörn.

„Enda er það lögum samkvæmt velferðaráðherra sem ákveður hvaða þjónustu skuli veita og hvaða þjónustu skuli ekki veita. Forgangsröðun skal ákveðin af ráðherra," segir hann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×