Viðbúnaðarstig á Reykjavíkurflugvelli 26. október 2011 09:06 Flugvélin sem lenti á Reykjavíkurflugvelli. Mynd/Einar
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lýsti yfir viðbúnaðarstigi þegar tilkynnt var um vélarbilun í lítilli einkaþotu sem óskaði eftir viðbúnaðarlendingu um klukkan níu í morgun. Lögreglan lokaði Suðurgötu við Vesturenda Reykjavíkurflugvallar þegar vélin kom inn til lendingar. Flugvélin var lítil einkaþota af gerðinni Cessna Citation en hún var í ferjuflugi á leið frá Íslandi til Skotlands. Vélin tók á loft um klukkan átta í morgun en þegar hún beygði til suðurs í átt að Skotlandi við Ingólfshöfða kom upp bilun í rafal vélarinnar sem hristi hana alla. Flugmennirnir tilkynntu flugstjórn um bilunina og að þeir hyggðust snúa við. Þeim var þá veitt heimild til varúðarlendingar á Reykjavíkuflugvelli. Lögreglan lokaði þá Suðurgötunni við Vgisíðu við vesturenda brautarinnar til þess að enginn bíll yrði fyrir ef eitthvað færi úrskeiðis. Sömuleiðis voru slökkvibílar í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli. Laust eftir klukkan níu lenti svo vélin hnökralaust á vellinum og ók í hlað hjá flugþjónustunni í fylgd slökkvibíls. Einungis flugmenn vélarinnar voru um borð, en annar þeirra er eigandi vélarinnar. Hann hafði keypt vélina í Kanada fyrir nokkrum dögum og var nú að flytja hana til Cannes þar sem hann býr, en hann er frá Mónakó. Íslenskur flugvirki var þá kallaður út til að líta á rafal vélarinnar og kanna hvort annar hreyfill hennar væri í góðu lagi en mikið sót sat á honum þegar vélin lenti. Ekki er víst hvort hann geti gert við vélina en að sögn flugmannsins þarf annars flugvirki frá framleiðanda vélarinnar að koma til Íslands. Flugmaðurinn vonast þó til þess að komast aftur í loftið síðar í dag.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Sjá meira