Dýraverndarsinnar safna liði til að hreinsa víraflækjur Erla Hlynsdóttir skrifar 26. október 2011 12:41 Það sem af er ári hefur vír verið losaður af þremur pörum hreindýrstarfa og af ellefu stökum dýrum til viðbótar. Mynd úr safni /Vilhelm
Hreindýrstarfarnir tveir sem voru fastir saman með vírhönk á hornunum eru lausir hvor frá öðrum eftir að annar þeirra felldi hornin. Vírinn er enn fastur á hinum tarfinum. Dýraverndarsinnar hyggjast fylkja liði á svæðið og fjarlægja víraflækjur. Tarfarnir við Flatey á Mýrum höfðu verið fastir saman í rúma viku, hið minnsta. Umhverfisstofnun vildi ekki grípa til aðgerða þar sem þeir virtust báðir ná að nærast og hreyfa sig, auk þess sem talið var að þeir myndu brátt fella hornin. Annar þeirra felldi síðan hornin í gær. Tarfurinn sem eftir stendur með víraflækju á hornunum verður undir eftirliti en á meðan vírinn særir hann ekki eða hindrar hann í hreyfingum verður hann látinn óáreittur. Árni Stefán Árnason, lögfræðingur sem er sérhæfður í dýrarétti, segir að það sem af er ári hafi vír verið losaður af þremur pörum hreindýrstarfa og af ellefu dýrum til viðbótar. „Það sem veldur okkur dýraverndarsinnum áhyggjum eru þessar girðingar sem liggja ennþá á þessu umrædda landi þar sem þessir tveir tarfar flæktust saman, skuli vera þar áfram. Af þessu stafar ógn fyrir dýrin og þetta er hvort tveggja í senn, brot á girðingalögum og dýraverndarlögum og þessu þarf að kippa í liðinn, helst bara án tafar," segir hann. Árni segir dýraverndarsinna ætla að safna liði og fara á Flatey í Mýrum til að hreinsa þar víraflækjur og fjarlægja skemmdar girðingar. Samkvæmt upplýsingum frá staðkunnugum eigi það ekki að vera mikið mál. Spurður af hverju það hefur þá ekki verið gert fyrir löngu, segir Árni: „Það er vegna þess að það virðist vera einhver stirðleiki í samskiptum á milli þeirra aðila sem eiga að koma að þessum málum, það er á milli bænda, sveitastjórnar Hornafjarðar og Umhverfisstofnunar, samkvæmt mínum bestu upplýsingum. Það er auðvitað eitthvað sem þeir þurfa líka að leysa sín á milli." Árni hvetur áhugasama sjálfboðaliða til að hafa samband með því að senda póst á velferdbufjar@lifraen.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Sjá meira