Innlent

Kveiktu á rauðum blysum fyrir utan Hörpu

Um tuttugu manns héldu á rauðum blysum fyrir utan Hörpu tónlistarhús rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag.
Um tuttugu manns héldu á rauðum blysum fyrir utan Hörpu tónlistarhús rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag. Mynd/JMG
Um tuttugu manns mótmæltu fyrir framan Hörpu tónlistarhús rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag. Mótmælendur héldu á rauðum blysum en í fundarsal Hörpunnar fer fram ráðstefna íslenska ríkisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Í tilkynningu segir að Rautt Neyðarkall hafi fyrst sést á lofti í desember 2009 á Austurvelli meðan á atkvæðagreiðslu Icesave II stóð yfir. Í janúar 2010 var aftur tendrað á rauðum blysum fyrir utan Bessastaði en þá afhendi Indefen-hópurinn forsetanum undirskriftarlista. Þá segir einnig að í dag sé þriðji í Rauðu Neyðarkalli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×