Innlent

Neyðarlögin fyrir Hæstarétt

Mynd/Getty
Hæstiréttur Íslands mun í dag klukkan tvö birta dómsniðurstöður í ellefu málum sem varða innistæður sparifjáreigenda og svokölluð heildsöluinnlán en í málunum reynir á stjórnskipulegt gildi neyðarlaganna, þ.e hvort neyðarlögin standist stjórnarskrá.

Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi en Héraðsdómur Reykjavíkur komst fyrr á árinu að þeirri niðurstöðu að lánin væru forgangskröfur.

Ef Hæstiréttur staðfestir niðurstöður Héraðsdóms geta greiðslur hafist úr þrotabúi Landsbankans til breska tryggingarsjóðsins og hollenska seðlabankans vegna Icesave-krafna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×