Útilokar ekki að bjóða aftur upp á ókeypis tannlækningar 10. september 2011 12:04 Guðbjartur Hannesson.
Enn hafa ekki náðst samningar milli tannlækna og stjórnvalda vegna aukinnar niðurgreiðslu á tannlækningum barna. Velferðarráðherra útilokar ekki að bjóða aftur ókeypis tannlækningar að ári fyrir börn tekjulágra ef tannlæknar verða enn samningslausir. Tannlæknar hafa verið samningslausir í tíu ár. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra leggur áherslu á að ná samningum sem fyrst enda fari tannheilsu barna hrakandi. „Á meðan þetta ástand er svona þá lít ég á þetta sem mjög alvarlegt vandamál,“ segir Guðbjartur og bætir við: „Þetta er bara eitt af fáum málum í heilbrigðiskerfinu íslenska þar sem við erum bara á niðurleið, og höfum verið undanfarin ár, það er að segja tannheilsa barna er að versna.“ Guðbjartur segir nóg af tannlæknum til staðar og reynt hafi verið að ná samningum. „En þeir samningar hafa því miður ekki náðst og við munum halda áfram að reyna en þetta er algjörlega óviðunandi ástand varðandi tannheilsu barna.“ Stjórnvöld réðust í átaksverkefni í sumar þar sem börn tekjulágra foreldra fengu ókeypis tannlæknaþjónustu. „Aftur á móti hefur það verkefni ekki alveg klárast og við eigum eftir að sinna þar ákveðnum einstaklingum sem sóttu um og hefðu átt að fá ókeypis tannlækningar. Svo það vandamál stendur ennþá, að leysa það. En stærsta vandamálið er það að við þurfum að ná samningum við tannlækna til lengri tíma,“ segir Guðbjartur. Samkeppniseftirlitið vísaði á dögunum frá kæru tannlæknis á hendur velferðarráðuneytinu þar sem hann sakaði það um að standa fyrir ólöglegri samkeppni með átaki í tannlækningum fyrir börn tekjulágra. Guðbjartur segist feginn frávísuninni. „Er það stefnan að bjóða áfram upp á ókeypis tannlækningar fyrir tekjulægstu hópana? „Við höfum ekki tekið afstöðu. Markmiðið var það að ná að greiða niður að minnsta kosti allt upp í 75 prósent, allar tannlækningar fyrir börn, þá jafnvel upp í 18 ára aldur,“ segir ráðherrann. „Ef að við lendum í sömu stöðu á næsta ári þá útiloka ég ekki að við reynum að gera þetta aftur.“
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira