Fundað um hvalveiðar í Washington 10. september 2011 19:30
Fulltrúar íslenskra stjórnvalda funduðu í gær með bandaríska utanríkisráðuneytinu í Washington til að ræða hugsanlegar refsiaðgerðir Bandaríkjamanna vegna hvalveiða Íslendinga. Obama Bandaríkjaforseti hefur frest þar til um næstu helgi til að tilkynna þinginu hvort að gripið verði til aðgerða. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna fór fram á það í júlí að Barack Obama Bandaríkjaforseti beiti Íslendinga refsiaðgerðum vegna hvalveiða. Hann leggur til að gripið til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi. Slíkar aðgerðir fela í sér að dregið yrði úr samskiptum þjóðanna. Til að bregðast við þessu og upplýsa bandarísk stjórnvöld um stefnu Íslands í hvalveiðimálum funduðu fulltrúar íslenskra stjórnvalda í Washington í gær með bandaríska utanríkisráðuneytinu. Þeir Tómas Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, og Hjálmar Hannesson, sendiherra Íslands í Washington, sátu fundina fyrir Íslands hönd og hittu þeir einnig starfsmenn beggja öldungadeildarþingmanna Alaska. Tómas Heiðar segir fundina hafa verið vinsamlega en þeir hafi lagt áherslu á að hvalveiðar Íslendinga séu fyllilega löglegar og sjálfbærar. Jafnframt hafi þeir bent á að bandarísk stjórnvöld séu ekki sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýna veiðar Íslendinga á langreyði en óska á sama tíma eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við veiðar Bandaríkjamanna á norðhval frá Alaska. Fyrir liggi að langreyðarveiðar Íslendinga séu sjálfbærar engu síður en norðhvalsveiðar Bandaríkjamanna. Obama Bandaríkjaforseti hefur frest þar til um næstu helgi til að tilkynna hvort að gripið verði til aðgerða gegn Íslendingum.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira