Var beðinn um að hafa lægra og réðst á lögreglumann 11. september 2011 09:47 Lögreglan.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði rúmlega tvítugan karlmann í tvígang á skömmum tíma fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, fyrst um kvöldmatarleytið í gær og síðan aftur í nótt. Sextán ára piltur, sem tók bíl foreldra sinna ófrjálsri hendi, var einnig stöðvaður í nótt en sá ók réttindalaus um götur bæjarins ásamt tveimur vinum. Karlmaður gistir fangageymslur lögreglunnar fyrir ölvun og óspektir en sá hinn sami varð illur þegar lögregla bankaði upp á hjá honum eftir að hafa borist kvörtun um hávaða frá íbúðinni. Hann réðist að lögreglumanni sem bað hann um að hafa lægra og var skellt í járn. Vegna ölvunar var ekki hægt að yfirheyra manninn í nótt en það verður gert um leið og hann hefur sofið úr sér áfengisvímuna. Karlmaður var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri vegna áverka sem hann hlaut í slagsmálum við annan mann á skemmtistað í nótt. Hinn aðilinn var handtekinn og verður hann yfirheyrður síðar í dag. Þá var ungur karlmaður tekinn fyrir áfengis og fíkniefnaakstur á strandgötunni snemma í morgun. Brotist var inn í verslun 11-11 í Þverbrekku í Kópavogi um hálfsexleytið í morgun. Þegar lögregla kom á staðinn var þjófurinn, fimmtán ára gamall piltur, enn á vettvangi en sá hafði brotið rúðu í glugga til að komast inn. Pilturinn var undir miklum áhrifum áfengis og vímuefna og var því vistaður í fangageymslum lögreglunnar þrátt fyrir ungan aldur. Foreldrum hans og barnaverndaryfirvöldum hefur verið gert viðvart, en grunur leikur á að hann hafi ekki verið einn að verki. Þrír teknir fyrir ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Mest lesið Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Fleiri fréttir Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun Sjá meira