Um hundrað smáskjálfta vegna jarðhitarannsókna 11. september 2011 13:48 Hellisheiðin.
Á annað hundrað jarðskjálfta hafa mælst frá miðnætti. Þar af um hundrað á Hellisheiðinni. Ástæðan fyrir þessari gríðarlegu aukningu jarðskjálfta á svæðinu eru vegna jarðhitarannsókna við Húsmúla á Hellisheiði. Allir skjálftarnir eru litlir að stærð og ólíklegt að nokkur finni fyrir þeim nema sá hinn sami sé nærri borholunni. Stærsti skjálftinn sem mældist á svæðinu var 2,4 á richter. Hann mældist reyndar í gær. Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðfræðingur, segir skjálftavirknina á Hellisheiðinni eðlilega miðað við rannsóknir á svæðinu. Aðspurður hvort slíkt geti orðið hættulegt svarar hann: „Ef það er verið að bora niður í stórar sprungur þar sem mikil spenna hefur byggst upp, þá gæti þetta orðið hættulegt." Það er þó ekki búist við því að sögn Hjörleifs. Hann segir þetta ekki í fyrsta skiptið sem slík virkni mælist við jarðhitarannsóknir Orkuveitunnar Í Reykjavík. „Þetta er hluti af þeirra rannsóknarferli til þess að finna réttu sprunguna," útskýrir Hjörleifur. Skjálftavirknin heldur áfram í Kötlu en stærsti skjálftinn frá miðnætti mældist nærri Goðabungu, en hann var 2,6 á richter samkvæmt fyrstu mælingum. Hjörleifur segir ótrúlega mikla jarðskjálftavirkni á svæðinu. Það bendi þó ekkert til eldgoss að svo komnu máli. Hann segir að þá stigmagnist skjálftarnir. Svo hefur ekki verið í þeim skjálftahrinum sem hafa orðið í jöklinum. Fyrir þá sem vilja kynna sér það hvernig rannsóknir valda jarðskjálftum er hægt að fræðast um málið hér.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Sjá meira