Vonbrigði með tillögu um vegbætur 12. september 2011 18:25 Patreksfjörður. Mynd úr safni.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar lýsti í dag yfir vonbrigðum með tillögu innanríkisráðherra um vegbætur á sunnanverðum Vestfjörðum. Tillagan lýtur að því að endurnýja veg sem fyrir er á svæðinu og liggur um tvo torfæra hálsa. Íbúar svæðisins vilja að lagður sé nýr vegur um láglendið sem styttir vegalengdir og bætir skilyrði fyrirtækja og einstaklinga á svæðinu. „Það er beisiklí verið að ganga gegn óskum íbúa á svæðinu og lagt til að byggja það sem þeir vilja alls ekki," segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, en hún telur veginn sem um ræðir agalegan. „Þetta var upphaflega bráðabirgðavegur." Ákvörðun innanríkisráðherra felur í sér að endurnýja þann veg sem fyrir er og ráðast svo fljótlega í framkvæmdir á göngum undir Hjallaháls. Ásthildur telur ekki gáfulegt að eyða pening í að endurnýja veginn og hefja svo framkvæmdir við göng nokkrum árum seinna. „Það eru milljarðar í tafli. Svona gerir ekki heilvita fólk," bætir hún við. Ásthildur minnir á að árið 1996 var láglendisvegurinn sem íbúar svæðisins óska sér samþykktur sem bestur kosturinn í stöðunni. Að þeirri samþykkt komu Vegagerðin, Samgönguráðuneyti, Umhverfisráðuneyti og Alþingi Íslendinga. Framkvæmdir við hann drógust svo vegna málaferla. Nú vekur furðu Vesturbyggðar að innanríkisráðherra komist að annarri niðurstöðu og leggi til að endurnýja fjallaveginn. „Hann telur að með þessu megi hraða framkvæmdum og þetta sé einnig skásti kosturinn með tilliti til umhverfis og náttúru," segir Ásthildur. Bæjarstjórn Vesturbyggðar telur hins vegar að endurnýjun fjallavegarins hafi í för með sér óbætanlegan skaða á náttúru hálsa þeirra er um ræðir. Bæjarstjórnin skorar á Alþingi að hafna þessari lausn á vegamálum þegar hún verður lögð fyrir þingið.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Sjá meira