"Ég er ekki að hnýta í forsetaræfilinn“ 14. september 2011 12:51 Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, telur að forseti Íslands þurfi að svara því hvernig hann hyggst bregðast við gagnrýni ráðherra í sinn garð. Björn spurði á Alþingi í morgun hvort forseti ætli að rjúfa þing og boða til kosninga. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, gagnrýndi ríkisstjórnina og evrópuþjóðir harðlega í viðtölum við innlenda og erlenda fjölmiðla fyrr í þessum mánuði. Ummæli forseta hafa vakið hörð viðbrögð og hafa ráðherra ríkisstjórnarinnar meðal annars talið að forsetinn væri með þessu að ráðast beint á stjórnvöld. Í viðtali á Bylgjunni á mánudag sagðist Ólafur Ragnar ekki ætla sitja undir því sem hann kallaði aðför fjármálaráðherra að sér og forsetaembættinu. Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, fjallar um málið á heimasíðu sinni og spyr hvort forseti ætli að krefjast afsagnar fjármálaráðherra eða jafnvel rjúfa þing og boða til kosninga líkt og heimilt er í stjórnarskránni. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, tók málið upp á Alþingi í morgun og spurði Björn hvort ríkisstjórni íhugi að leggja fram vantrauststillögu á forseta. Björn Valur sagði að forsetinn þyrfti að svara þessum spurningum sjálfur en að öðru leyti væri hann ekki að hnýta í forsetaræfilinn eins og hann orðaði það sjálfur. „Ég er ekki að hnýta í forsetaræfilinn með neinum hætti eða beina orðum mínum til hans," sagði Björn Valur og benti á að þingmenn ættu að velta því fyrir sér ef forsetinn gerir athugasemdir við störf þeirra á þinginu. Björn Valur sagðist ekki vita til þess að ríkisstjórnin ætli sér að lýsa yfir vantrausti á forseta. „Mér finnst það skipta máli ef forsetinn segist ekki ætla að sitja undir ummælum kjörinna fulltrúa á þinginu, hvort sem það eru ráðherrar eða þingmenn," sagði Björn valur.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Sjá meira