Chomsky fjallar um heimsmálin í Háskólabíó 9. september 2011 13:34 Chomsky fundaði með Jóni Gnarr í morgun.
Bandaríski málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn dr. Noam Chomsky, öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs, flytur í dag tvo fyrirlestra á vegum Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Chomsky kom til landsins í gær. Chomsky fundaði í morgun með Jóni Gnarr borgarstóra og eiginkonu hans en á hádegi flutti hann fyrirlestur á námskeiði um áhrif hugmynda hans á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum. Námskeiðið er kennt á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Fyrirlestur dr. Chomskys fjallaði um málfræði og nefnist „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects" að því er fram kemur í tilkynningu frá Háskólanum. „Klukkan 15 í dag er svo komið að seinna erindi dr. Chomskys. Það verður flutt í stóra sal Háskólabíós. Í því erindi mun dr. Chomsky fjalla um stöðu heimsmálanna, lýðræði, vald og ofbeldi undir yfirskriftinni ,,The two 9/11s: Their historical significance". Þann 11. september verður áratugur liðinn frá árásunum á Tvíburaturnana í New York en Chomsky hefur talsvert ritað og rætt um orsakir og afleiðingar þeirra,“ segir ennfremur. Dr. Noam Chomsky er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðu. Hann er prófessor emeritus í málvísindum við Massachusetts Institute of Technology (MIT). Undir lok 6. áratugs síðastliðinnar aldar lagði dr. Chomsky grunninn að þeirri stefnu í málvísindum sem hefur verið nefnd málkunnáttufræði á íslensku. Sú stefna olli straumhvörfum í málvísindum, en eitt meginatriði hennar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Allar götur síðan hefur dr. Chomsky verið að þróa málvísindakenningu sína í fjölda greina og bóka. Hann er talinn einn fremsti málvísindamaður sem uppi hefur verið og er einn þeirra vísindamanna sem oftast er vitnað til í fræðiritum. Dr. Chomsky er einnig heimskunnur sem samfélagsrýnir og hefur birt fjölda bóka og greina á því sviði.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira